- Ja skildi Hádegismóri ná að setja

 

 

         sína  bláu  hönd  á  blað  " réttvísinnar "  ,  að  þessu  sinni  ?

         Við  skulum  vona  ,  að  nú  muni  vit  ráða  ferð  -  það  er  ,  jú  ,  öllum  fyrir  bestu  ,  nema  blámönnunum .


mbl.is Hjördís hættir í Hæstarétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagur B ! Þá vitum við það - styrkir

 

 

        eru ekki rugl  -  slæm mæting í vinnu er ekki rugl  .

        Svona tala bara reynslumiklir menn í pólitík með pólitískt siðferði , öðru nafni hroka og blindu , að leiðarljósi .

        Er það það sem við viljum næstu fjögur árin ?

        Nei gefum gömlu settunum frí - gefum styrkþegunum frí - gefum "pólitísku reynsluboltunum" frí , því þeir eru marg marg marg búnir að vinna sér inn fyrir því - bæði með og án læknisvottorða .

       Hættum fíflalátunum og kjósum mestu og Bestu alvöruna , hegnum sukki og svikamyllum , sjáum um að Bjarnfreðarson geti gert þetta einn og óstuddur , án sukkflokkanna .


mbl.is Horfast þarf í augu við ruglið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir Reykvíkingar munu deyja -

 

 

        strax , eftir að talið hefur úr kjörkössunum , kjósi þeir ekki Hönnu Birnu .

        Er þetta mín ósk , eða er þetta mín fullyrðing ?

        Hvorugt  -  heiðurinn af þessarri "staðreind" á auglýsingin X-D , þar kemur framm að "Við veeerðum að standa saman"  og " ,  ,  , er S V O nauðsynlegt að  ,  ,  ," - .

       "Blákaldur veruleikinn" er því augljóslega sá , að verði þessi manneskja - sem fór í felur fyrir öllum myndatökuvélum fyrir u.þ.b. 1000 dögum síðan ásamt Gísla Marteini , sem samtímis því að stunda nám í Englandi var í  V I N N U hjá okkur Reykvíkingum hvernig sem það er nú hægt , ef hún verður ekki borgarstjóri þá verður ekki annað gert hjá sýslumannsembættinu í Rvk. en gefin út dánarvottorð á alla Reykvíkinga eftir kosningar , ekki veit ég hvort það á einnig við um  FL-flokksmenn sem þar búa , en sé svo , þá yrði það þó alla veganna að einhverju leiti til góðs að við er í Reykjavíkurþorpi búum yfirgæfum þetta jarðneska líf - strax að kosningum loknum .

       Já - svona lítur "Blákaldur veruleikinn" fyrir okkur kjósendum - þá vitum við það , þetta er grín og gamanlaus alvaran  .

       Má ég þá heldur missa lífið ásamt Jóni Gnarr og hanns viðbendlendum , fullum af glensi , gríni og einum jólasveini .

        Innann þessarra frambjóðenda , gömlu flokkanna , er fullt af styrkþegum , sem og OFURstyrkþegum , sem eiga sína RÁÐNINGU  marg-  , marg- , margskilið  , aðrir slíkir bullustrokkar að það hálfa væri nóg , eða bruðlið ; kaffisamsæti Óskars í Framapotaraflokknum , VINNAN hjá Gísla Marteini samfara skólanáminu í Englandi , kaupin á gömlu Laugavegs húsunum fyrir stjarnfræðilegar upphæðir , sérverkefni Eyktar sem og leigur þeirra húsnæðis , o.fl. o.fl. o.fl.

       Kjósandi  góður !   Gefum öllum  gömlu  flokkunum  ráðningu  -  því þeir eiga hana ALLIR skilið. 


mbl.is Margir enn óákveðnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er afar sjálfsagður hlutur , að innan FL-okksins

 

 

        skuli ekkert þessu áþekkt ské , vegna þeirrar einföldu staðreyndar , að mönnum , þar á bæ fynnst ekkert athugavert við svona framferði , enda er þar pólitískt siðferði , sem öðru nafni nefnist HROKI , í hávegum haft .

        Að vísu fynnast þar menn sem sáu sæng sína útbreidda , en miðað við fjölda og himinhæðir styrkjanna , þar á bæ , eru þessir menn eins og tveir þrír dropar af hafinu .

        Ég hugsa með hrillingi hvernig ástandið verður í Reykjavík , eftir kosningar  -  af hverju ;

jú  -  verður þetta draugaborg ?

        Fjölmiðlar allir hafa verið uppfullir af auglýsingum  ,  (hvaðan koma peningarnir fyrir svona herferð)  með Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og þar kemur augljóslega framm , að það verði ekki gert annað hjá sýslumannsembættinu í Reykjavík , eftir kosningar , en gefa út dánarvottorð á alla Reykvíkinga komist hún ekki til valda (ætli þetta hafi líka verið svo hjá Hitler) .

        Hvort þetta verði til góðs eða ills fyrir landsbyggðina , eða heimsbyggðina , að við sem búum í Reykjavíkurþorpi , yfirgefum vort jarðneska líf strax eftir kosningar , treysti ég mér ekki að fullyrða um , væntanlega á við , bæði , en skyldu Sjálfgræðgis FL okksmenn tilheyra þessum hópi er tilheyra henni Reykjavík þ.e.a.s. munu þeir , einnig , yfirfylla Grafarvogskirkjugarðinn - það leiddi þá eitthvað gott af sér .

        Já á þessu má augljóslega sjá , að með því að kjósa Hönnu Birnu og hennar fólk , þá kjósum við að lifa - þetta er "Bláköld" staðreynd - því fylgir ekkert grín og gaman , nei bara "Bláköld" alvaran  -  já og lífið .

        Æ hve ég hlakka til að hitta alla er farnir eru .


mbl.is Spjótin staðið um of á Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

- Ég var að horfa á Gísla heitinn í Uppsölum ,

 

 

         það mynnti mig á sumardvöl mína hinu meginn Arnarfjarðar , á Hrafnabjörgum hjá Gumma , Siggu og Kristínu mömmu þeirra .

        Þetta var eftirminnilegt sumar , fyrir margra hluta sakir , t.d. þegar maður hafði lokið erindi sínu á kamrinum , þá fór málgagnið , Tíminn , ekki til spillis því það var skeinipappírinn , stundum brúkaður með glott á vör , verst að það þurfti að spara hann , og svo er honum lauk , þá tók við - - - -  ,  en það skorar ekki hátt á mínum metorðastiga , hve vel eða illa ég er skeindur , þeir er mig þekkja  ættu að geta kvittað undir það .

        Það er afar hollt - hverjum og einum - að komast út úr nútímanum - endrum og sinnum og vissulega var það frábært að loka stundarkorn á hið pólitíska hugarmynstur með áhorfi á Gísla heitinn í Uppsölum , eða þá láta hugann reika til Hrafnabjarga - aftur og enn , en fjörutíu ár eru liðin frá dvöl minni þar - þegar allt var slegið  með orfi og ljá , eða er heyjað var inná Álftamýri og Stapadal , en það eru eyðijarðir innar í Arnarfirði (norðan verðum) , eftir að heyið hafði verið þurrkað nóg , að mestu , þá var því troðið í netapoka , síðan bornir um borð , man alltaf hve ég vakti mikla kátínu , því ballinn , sem ég bar , dróst vel eftir jörðinni beggja vegna burðardýrsins , en það breytti ekki því að áfram var haldið á fullri ferð - enda jörðin vel þurr .

       Já  -  svona hugsanir eru stórkostlegt mótvægi á pólitískt bullið og viðurstyggðina , sem virðist vera lífsnauðsynleg , þegar pólitík umræðir , eða hvaða orð önnur betri er hægt að nota t.d. um alla "blessaða" styrkþegana er áfram sitja í Þjóðarleikhúsinu og einnig þá er bjóða sig framm nú til að stjórna borginni ?

       Mikið lifandis skelfing hefði þetta fólk gott af að dvelja á svona stöðum , þó ekki væri nema eitt sumar - án rafmagns , án rennandi vatns , án hita , án bíla , án vega , án   S T Y R K J A .

       En minningin er ljúf , enda styrkjalaus .

 


- Steinunn Valdís ! Ert þú þjóðin , eða

 

 

        berð þú þjóðina í hjarta þínu ?

        Eitt er víst , að ég er ekki þar , hélt þó ég væri hluti þjóðarinnar , en það er nú svona með  þessa reynslumiklu pólitíkusa , þeirra sannleikur er stærri og öflugri en okkar hinna , sérstaklega pólitískra viðrina , eins og við á , er ég á í hlut , enda segja okkur dæmin að svo sé , eins og t.d. er Ingibjörg Sólrún tilkynnti okkur í Háskólabíói , á sínum tíma , " - - þið eruð ekki þjóðin" .

        Á meðan þú og þín dæla sjá ekki ásæðu til , að þú segir af þér þá hagar þú þér sem sannur útrásarvíkingur , þú ert saklaus , það hljóta að hafa verið kjánarnir sem þig styrktu , þeim ber að segja af sér .

        En svona yfirlýsing kemur ALLT ALLT ALLT of seint , þú varst í aðstöðu til að segja af þér eftir fyrstu mótmælin , fyrir utan þitt heimili , mótmæli sem þú , ein og óstudd , barst alfarið ábyrgð á , en eftir það , þá var siðferðið rokið út í veður og vind .

        Þín framkoma mynnir mig á afsökunarbeiðni Björgúlfs Thor um daginn , því hvernig sá "sómamaður" hagaði sér í Kompássþættinum 2008 , þá sá hann ekki eftir nokkrum hlut , þetta er eins og ef um tvö börn væri að ræða , annað réðist , að ósekju , á hitt , það væri skammað fyrir það , það segði fyrirgefðu , svo þegar allir litu undan , þá berði það hitt barnið aftur og enn , og allir ættu að fyrirgefa því , án hegningar , því það segði fyrirgefðu .

        Steinunn Valdís ! Getur hugsast , að er þú varst sköpuð , þá hafi gleymst að setja í þig hjarta  ?

       

       Guðlýgur Þór   S I T T U   S I T T U   S I T T U   -   S H J I T T U   -  ásamt  öllum  hinum styrkþegunum og dragið ykkar eigin FL-flokka í svaðið - enda eiga þeir ekki betra skilið , því þeirra er líka sökin að henda ykkur ekki  S T R A X  í burtu .


mbl.is Steinunn Valdís segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

- Hin heilaga þrenning ;

 

 

        Hanna Birna , Vilhjálmur Vilhjálmss og Gísli Marteinn , óhóhó ! Eru þau ekki dásamleg - að ég tali nú ekki um , ef svo ólíklega vildi til , að pólitískt mynni fólks skildi ná aftur svo sem um eitt þúsund daga já bíddu í hvaða leikriti vorum við stödd þá ; var það eitthvað eftir Kiljan eða Shakespeare  - bíddu hvaða leikrit var aftur verið að sýna ?

       Það var verið að sýna í öllum íslenskum fjölmiðlum feiknarlega flott og mikið leikrit - já vissulega var þetta gamanleikrit - voru þetta  "Dýrin í Hálsaskógi" ?

      Nei þetta voru "Dýrin í Camp David við tjörnina" .

      Ég verð að vísu að viðurkenna það að mér þótti þetta leikrit frá a-ö , sorglegt , því ég hafði það , og hef enn , afar sterkt á tilfynningunni að það væri verið að senda beint út frá Kleppsspítala , en svo var víst ekki , nei það var sent út frá Kjarvalsstöðum , daginn eftir , eða samdægurs , skiptir ekki öllu - var sýnt er litlu börnin , Hanna og Gísli , fóru í felur fyrir kvikmyndavélunum , hárkollan fauk ekki , sem betur fer , og áfram hélt leikritið , næstu daga þar á eftir .

     Það kom að því að súkkulaðibarnið Gísli Marteinn þurfti að mennta sig , fór til Edinborgar , en hélt þó áfram að vera í           " V I N N U "    hjá okkur borgabúum .

     Óhóhóhó !  Hve þetta voru unaðslegir tímar  -  auðvitað ,  já ,  auðvitað kjósandi góður , auðvitað höldum við gamanleiknum áfram - neiónei - það er sko engin þörf að skipta um leikara í Camp David , ekki frekar en á Austurvelli  .

    Nei nei höldum áfram með "gamanleikinn" frá Kleppsspítala - það er af frekar litlu að missa í sjónvarpinu hvort eð er - vegna niðurskurðar þar , sérstaklega á launum Páls útvarpsstjóra . 


mbl.is Flestir vilja Hönnu Birnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig sem Bjarnfreðarson reynist okkur í höfuðstaðnum ,

 

 

        þá er það morgunljóst , hann getur ekki verið verri en það sem við höfum haft undangengin ár , þessu til viðbótar , þá er það óumflýjanleg staðreynd , að gömlu flokkunum þarf að hegna , og engan veit ég um sem ég get þar undanskilið ; erum við ánægð með fíflalætin sem hafa viðgengist í ráðhúsinu undangengin ár , t.d. í kring um Villa Vill , Ólaf Magn , Óskar Bergs með sitt kaffisamsæti og allt sitt "vit" , erum við búin að gleyma Hönnu Birnu og Gísla Marteini , erum  við  búin  að gleyma  matarforða Spaugstofunnar , sem hún fékk úr borgarstjórninni , erum við búin að gleyma því hve "vel" Dagur B hefur mætt í sína vinnu (þ.e. á fundina) , viljum við halda þessum "djúphyggnu" reyndu stjórnmálamönnum áfram við völd í borginni okkar ?

       Vel getur verið , að Bjarnfreðarson reynist okkur ekkert neitt afar vel , næstu fjögur árin , en hefur fólk virkilega trú á að ástandið versni , sé svo , þá þarf fólk að gera eitthvað afar róttækt í sínum málum , nema það hafi flokksskírteinið upp á vasann .

      Verum mynnug þess á kosningadag , að við þurfum að hegna þeim mannskap , sem í ráðhúsinu hefur verið , undangengin ár og skiljum gullfiskamynnið eftir heima er við förum á kjörstað .

      Þessu til viðbótar ætla ég rétt að vona að Bjarnfreðarsyni detti ekki í hug að fara að hrófla við Vatnsmýrinni þ.e. það sem eftir er af henni , eða flugvellinum , þar er ekki gull að fynna , allra allra síst í dag , hann hefur , í það mynnsta , ekku mynnst á það .


mbl.is „Fyllist von fyrir hönd borgarinnar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

- Það hefur tíðkast , að er slátrað er gripum ,

 

 

        þá eru þeir teknir hnakkaskoti , hvort slíkt dugi á rándýr , er spurning , en á útrásarvíkinga dugir eina meðalið að byrja á nögl litla fingurs og skal það gert í beinni , enda er lítið varið í sjónvarpsefnið núna , dag eftir dag eftir - - - - - - - -  .

        Það er með öllu ólíðandi er þessir svíðingar reyna svo að þagga niður í vel gerðum fréttamönnum sem reyna að varpa staðreyndum , um þessa líka heiðursmenn ,  upp á yfirborðið .

        Svo legg ég eindregið til að þessir "sómamenn" verði settir í gapastokka niður á Austurvelli , þar sem almenningur getur veitt þeim frían hárþvottt , eftir að hafa fengið sér einn eða tvo bjóra , svo er þetta meiriháttar sjampó sparnaður fyrir ríkið .

       


mbl.is RÚV: Þriggja milljarða leitað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

- Sko þig Lilja !

 

 

        Þér er ekki alls varnað - því það ríður ekki við einteiming , endaleysan í Þjóðarleikhúsinu , eða hví er enginn niðurskurður innann veggja leikhússinns - hví er leikurunum ekki fækkað , sem og ráðherrum , nefndum  eða  réttara  sagt  ónefndum  ,  en  þær  voru  fyrir  hálfu  níunda  ári  930 -   NÍUHUNDRUÐOGÞRJÁTÍU  -  hvað eiga svona fíflalæti langt að ná ?


mbl.is Segir sig úr ríkisfjármálahópi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband