lau. 22.5.2010
- Alveg er ég að rifna úr stolti
yfir að sjá hana með köllunum , bera af , sem gull af eir .
Já hún hefur efalaust upplýst þá alla um allar miklu björgunaraðgerðirnar sem hún og Steingrímur , já að ég mynnist nú ekki á Árna Pál , hafa staðið í .
Hver skyldi nú fjöldinn verða á heimilunum sem fer undir hamarinn fyrir áramót ?
Nei nei allt í sómanum Skjaldborg Gjaldborg , þú hefur þín 1450þúsund á mánuði og allt í lukkunnar velstandi - hefjum nú bara uppbyggingu í stjórnaróráðunum og fleiri þingnefndir , það bjargar heimilunum í landinu - já og greiðslujöfnunarbrandarinn - hann bjargar nú ekkert litlu , eða hitt þó heldur.
![]() |
Forsætisráðherrar ræða um efnahagskreppu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 20.5.2010
Ef þú vilt bæta ástandið Villi vitskerti
þá byrja þú á að pilla þér úr stjórn sukksjóðsins Gildis , og skammastu þín , ef þú skyldir kunna það .
![]() |
Vill ekki hugsa til haustsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 20.5.2010
- Það er viðbjóðslegt og með öllu -
óskiljanlegt hve margir leggjast svo lágt , að skipta við þetta Nova - því hver er eigandinnn ?
Jú enginn annar en einn aðalútrásarvíkingurinn , sem búinn er að valda okkur íslendingum milljarða milljarða tjóni og heldur því , væntanlega , enn áfram .
Með hverju hugsa viðskiptavinir þessa fyrirtækis - litlu tá ?
![]() |
Síminn stærstur en Nova sækir á |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fim. 20.5.2010
- Skjaldborg vor ,
þú sem ert við Austurvöll !
Gef mér í dag mína daglegu Gjaldborg og fyrigefðu mér mínar botnlausu kröfur , svo sem ég fyrgef þér þína sandkassaleiki í Þjóðarleikhúsi voru . Leið mig ei í freistni til að kjósa Jón Gnarr , heldur Þjóðarleikhússdírðina - því að þinn tími er kominn , framm að næstu Byltingu , barsmíðum og meisi ÞRÆLANNA .
Ji minn eini .
Nú legg ég bloggið aftur
ó þinn Hádegismórakraftur
mín veri vírusvörn í nótt ,
Hæstrétt þinn láttu vaka ,
því ekkert hef til saka ,
Jón Steinar ég lofa af þrótt .
Heimspeki | Breytt 23.5.2010 kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 20.5.2010
- Heyrst hefur , að Írafellsmóri -
hafi verið á lista SjálfstæðraSjálfstæðismanna , það hafi vantað mann í fyrsta sætið , ætli þetta sé satt ?
![]() |
Sjötti hver kjósandi í Kjósinni í framboði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 20.5.2010
- Krosslafur sé kreppu -
næstur og annist ár og síð , já alla tíð .
Ég var að horfa á Helga Hóseasson í sjónvarpinu , og ég verð að segja , því miður , þá var ég honum sammála - trekk í trekk , og það var til skammar hvernig við íslendingar fórum með hann , því hvað er skírnarsáttmáli annað en einhver samþykking , sem hver og einn ætti að geta skipt um skoðun og neitað , sýnist honum svo , eða er okkur óheimilt með öllu að skipta um skoðun í lífinu - hvers vegna er meira mál að afmá skírnarsáttmálann , en að skipta um trúflokk , við höfum jú rétt á að segja okkur úr þjóðkirkjunni , jafnvel annann Krosslaf ?
Gott þótti mér nafnið hjá honum á svokölluðum löggæslumönnum þessa lands , þeim sömu og eiga að verja einstaklinga landsins , en í stað þess að verja , þá berja þeir oft og einatt þá sömu , t.d. ef þessir "stórglæpamenn" dirfast að tjá sig um framferði Þjóðarleikhússleikaranna á Austurvelli , hann skírði þá ÞRÆLA , já þrælar eru þeir , og þrælar skulu þeir heita - lögreglan .
Ungur að árum komst hann að því að það voru til Alþýðuflokksíhöld , Framsóknaríhöld og Sjálfstæðisíhöld , og allt væri þetta sami grauturinn í sömu skálinni - sem eru , jú , orð að sönnu , er svo einhver að efast um að niður við Austurvöll stendur aðalleikhús landsins sjálft Þjóðarleikhúsið?
Krosslafur sé þeim næstur , er um það efast - ei mun af veita .
Með kærri kveðju frá RÍÓ - því ei mun af veita .
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
mið. 19.5.2010
- Gestur ! Auðvitað er engin
ástæða til handtökuskipunar , þessi sómamaður hefur séð til þess að við þurfum bara að borga nokkra milljarða fyrir athæfin sem hann og hanns kónar hafa gert - kúlulánin - hann ábyrgð - neinei aldrei - auðvitað var það bankinn sem bar ábyrgð á þeim "mistökum" ekki aumingja Siggi sem allir eru svo vondir við .
Gestur ! Í alvöru ; hvar er þitt siðferði - er það í holræsum borgarinnar ?
![]() |
Máli Sigurðar vísað frá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Breytt s.d. kl. 21:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 19.5.2010
- Gvöði sé lof og prís ,
að Árni Matthiesen , dýralæknirinn sjálfur , var búinn að skipa Þorstein Hádegismórason í embættið , annað hefði nú verið ljóta klúðrið , já og spilling .
Og er þá heldur ekki hægt að einkavinavæða HæðstaHæstarétt , ja ljótt er að heyra og skömm .
Mér er bara spurn ; skyldi Hádegismóri vita af þessu , eða einkavinur hanns Flón Ásgeir ?
![]() |
Lög um skipan dómara samþykkt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þri. 18.5.2010
- Á svo eftir fundinn -
að bjóða til kaffisamsætis í boði Framapotaraflokksins , eða réttara sagt ;í boði allra Reykvíkinga ?
Þetta er greinilega nýjasta veiðivopnið til atkvæðaveiðanna - fýluna leggur langar leiðir .
Í hreinskilni sagt , þá fynnst mér það ábyrgðarlaust fólk sem kýs sama dótið yfir sig aftur og enn , og hreinasta aðhlátursefni , en pólitík er nú einu sinni ekki annað né meira en pólitík , og gullfiskaminnið blífur í kjörklefanum .
![]() |
Samþykkt að halda opna borgarafundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þri. 18.5.2010
- Vissulega -
Hefur það aldrei þótt stórmannlegt að sparka í liggjandi mann , en þetta er nú einu sinni verk gvöðs útvaldra pólitíkusa , svo höldum bara kj , , , og verum þæg og góð .
![]() |
Árás stjórnvalda á félagslega kerfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |