þri. 18.5.2010
- Jájá eyðum tugum -
ef ekki hundruðum milljóna í svona vitleysu - höldum endilega vitleysunni áfram að haga okkur eins og hver önnur fífl .
Þetta er ofur einfalt (ekkert tvöfalt , hvað þá margfalt) : SUKKSJÓÐINA á að leggja niður og það ekki seinna en strax og Vilhjálm Egilsson og hans áhangendur á að flytja út í Kolbeinsey .
Sé fólk í svo miklum vandræðum að koma peningunum sínum í lóg , þá skal ég taka slíkt að mér , fyrir sáralítinn pening .
Staðreyndirnar tala sínu máli , það hefur trekk í trekk stórskaðað lífeyrissjóðina , í sumum tilfellum sett þá á hausinn , að hafa þessa líka stórkostlegu fjármálasnillinga í vinnu , eða þá launin , muni ég rétt , þá var Þorgeir Eyjólfsson hjá sukksjóði VR með 4milljónir á mánuði árið 2007 .
Hvenær opnast augu almennings fyrir staðreyndum ?
![]() |
Starfshættir lífeyrissjóðanna verði rannsakaðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þri. 18.5.2010
- Ekki var okkur Víglundi ætíð vel til vina , -
en það breytir samt ekki þeirri staðreynd , að það er eftirsjá hin mesta í þessu fyrirtæki .
Margt má segja misgott um Víglund , hann hafi ekki átt að vera í stjórn lífeyrissjóðsins osfrv. osfrv. , en hann unni fyrirtækinu og sínum starfsmönnum alls hinns besta .
Já Víglundur ! Þrátt fyrir sykurmolaútreikninginn , já og ég var þér ekki sammála , þá vorkenni ég þér og þínum - því þú ert - þegar öllu er á botninn hvolft ; ekki svo slæmur inn við beinið , hvað þá merginn .
Takk fyrir samstarfið - enn og aftur , ég þakkaði þér það er ég hætti - sjáumst síðar - ef ekki fyrr , þá í næsta .
Já og það segir þú dagsatt Víglundur - ég skal segja það fyrir okkur ; hún Skjaldborg Gjaldborg er afar "öflug" , þó ekki eins "öflug" og FL-flokkurinn væri , væri hann enn við völd .
Víglundur ! Kannske við ættum að reyna við Esjuna , enn og aftur í sumar ; - ) .
![]() |
BM Vallá óskar eftir gjaldþrotaskiptum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 12.5.2010
Sennilega reynast Veiðilækjakaupin
leikur einn , miðað við réttvísina í þessu máli , og var þó erfitt , mjög , eftir því sem fréttir herma , að semja við Davíðana um Veiðilækjasöluna , einn erfiðasti , eða erfiðasti , samningur sem viðkomandi hefur lent í , þ.e. Sigurður E.
Sigurður ! Þar sem ég hef enga trú á , annað en að þú hafir eitthvað á milli eyrna þinna , annað en bil , villt þú ekki gjöra svo vel og horfast í augu við þínar gjörðir , það er jú það sem fólk almennt þarf að gera , þú getur , því miður , ekki ýtt á rewind .
![]() |
Segist engin brot hafa framið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 12.5.2010
Sitt hvor er sannleikurinn í Baugstíðindum ,
eða þá hjá Hádegismóra , en nú má reikna fastlega með , að Hádegismóralesturinn aukist verulega , í hlutfalli við Baugstíðindi , þ.e.a.s. miðað við fyrri tíma .
Ekki veit ég hvort það sé til góðs eða ills , kannske bæði , en skelfing vildi ég sjá flutta vikulega pistla hér á mbl.is , sbr. Flosi heitinn Ólafsson í Þjóðviljanum , ekki man ég nafn pistilsins í svipinn , en hann var oft á tíðum óborganlegur , þetta voru vikulegir pistlar , og muni ég rétt , þá voru þeir í fimmtudagsblaðinu. Það hlýtur að vera hægt að klófesta einn álíka , sem gæti fjallað um sína sín á (þjófa)þjóðfélaginu án þess að vera með litaðar skoðanir á málum - hvað eru Spaugstofumenn t.d. að gera um þessar mundir ?
![]() |
Heimsóknum á mbl.is fjölgar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 12.5.2010
Ekki þekki ég Brynjar ,
en hitt veit ég , að ég hef og hef haft á tilfynningunni í þó nokkurn tíma , að honum væri helst treystandi af hæstaréttardómurunum , hvað það varðar að valda sínu erfiða starfi þ.e. , að sjá til þess að réttvísin nái framm .
Því segi ég ; til lukku með formennskuna Brynjar .
![]() |
Brynjar formaður Lögmannafélagsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 12.5.2010
Þetta er kórrétt -
![]() |
Átök í héraðsdómi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 12.5.2010
- Vinstri krókur ,
það er væntanlega eitthvað sem Flón Ásgeir þekkir af afspurn - svona eins og DIET kók .
En skelfingar ósköp væri nú gott að vita af skítnum fyrir utan 200 mílurnar á öruggum stað , en það er víst bannað að henda rusli í sjóinn .
![]() |
Ætlar ekki að taka til varna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 12.5.2010
Herra Bessastaðatrúður !
Mættir þú á staðinn með Stórriddarakrossinn , tilbúinn að að næla honum í Flón Ásgeir ?
Herra Ólafur ! Sittu - sittu - sittu - sittu - sittu - SHJITTU .
![]() |
Óskað eftir kyrrsetningu hér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 11.5.2010
- Ber Hádegismóri -
ekki ábyrgð á að láta þessa glæpamenn hafa 510m. evra án þess að tryggja að peningurinn fari ekki í ótakmörkuð veðlaus lán , eða gilda sérstök lög yfir GOÐIÐ ?
Kannske litluguluhænu lögmálið gildi hvað varðar Seðlabankastjórana : "Ekki ég" .
En mikið gleðst ég yfir öllum þessum handtökum , sem ná út yfir mínar væntingar . Ég ætla bara að vona að Ólafur sérst.saks. fari ekki framm úr sér , svo þessir glæpamenn geti ekki farið í mál við ríkið .
Ég vil leggja það til að þeir sem fynnast sekir , svo fangelsun varðar , það verði farið með þá á báti út fyrir 200 mílurnar og soranum sleppt í sjóinn , eða þá gapastokka á Austurvelli þá gæti maður veitt þeim frían hárþvott , er maður væri búinn að fá sér bjór , jú vissulega þvottasparnaður fyrir ríkið , að ég tali ekki um ánægjuna .
![]() |
Mál án hliðstæðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 10.5.2010
- Ég kíkti í Þjóðarleikhúsið í dag ,
og satt best að segja , þá kom það mér spánsk fyrir sjónir er ég varð að fara úr jakkanum og skilja eftir farsímann nið´r við útidyrnar , en er upp á leikhúspallana var komið sá ég að ekki eru einasta ein lög , eða reglur hér í þessu landi , því sumir leikaranna voru með símann með sér í salnum , nei það hefur víst aldrei verið sama hvort um er að ræða Jón eða séra Jón - jájá ; allt uppá borðum , farsímarnir líka , nema hjá hinum óbreytta Jóni .
Og mikill var styrkjafnykurinn , ekki dró úr honum er fv. heilbrigðisÓráðherra Guðlaugur Styrkjaþór birtist í pontu , og ég segi það satt , það var mikið gott að komast undir bert loft , en ekki fann ég Skjaldborg Gjaldborg þarna inni , fann aftur á móti lykt af vínarbrauðum - það þarf jú að metta svanga og AURALAUSA munna .
Leið mín úr Þjóðarleikhúsinu lá til skrifstofuSTJÓRA Þjóðarleikhússins , til að kvarta undan Jóns og séra Jóns reglum í Þjóðarleikhúsinu og hvað haldið þið - hann í vinnunni - al sjálfsögðu EKKI , nei nóg að hirða launin , aukaatriði að sinna starfinu .
Það er dagsatt sem Bragi Kristjónsson sagði í Rykkorninu : "Það á að reka alla stjóra hjá ríki og bæ , nema strætisvagnastjóra , því ef þú ætlar að hitta þá , þá eru þeir annað hvort ekki við , eða á FUNDI - væri ekki ráð að grynnka á skítnum , hann yrði nægur fyrir það ?
![]() |
Tímasetning sameiningar óákveðin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |