lau. 26.6.2010
- Að vísu skuldar þessi maður þjóðinni vafninga -
lán , muni ég rétt , um 12 milljarða , svo kannske súkkulaðstrákurinn úr Engey ætti að snúa sér að því að fá S T Y R K I hjá þjóðinni til að endurgreiða vafningalánin .
Hitt er aftur staðreynd , að ég tel , að hann hefur lög að mæla , þótt ekki skei slíkt oft hjá þessum súkkulaðidreng , því það hefur verið mín skoðun til langs tíma að ESB aðild okkar yrði ekki heillaspor okkar íslendinga .
![]() |
Leggja aðildarumsókn til hliðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 26.6.2010
- Margt er skrítið er í kýrhaus býr ,
eða hvers vegna hafði AGS ekki áhyggjur af afskriftum hjá bönkunum er varðaði útrásarvíkingana svo nam milljarði á milljarð ofan fyrst hann (AGS) hefur áhyggjur af þessum afskriftum , skildi AGS hafa einhverra hagsmuna að verja , líkt og "blessaðir" bankastjórarnir og "blessaðar" bankaráðsnefndirnar eitt er kristaltært ; ef þú klórar mér , þá klóra ég þér .
![]() |
RÚV: AGS hefur áhyggjur af stöðu fjármálakerfisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 23.6.2010
- Már Guðmundsson ! Ég hvet til samstöðu í kolli þínum ,
því ég veit ekki betur , en þeir sem skulduðu körfulán , hefðu fengið að fara á hausinn í GUÐS FRIÐI , þ.e.a.s. ef dómur Hæstaréttar hefði ekki komið til , og tali ég bara fyrir mig , þá væru 50% líkur á að ég færi á hausinn , ef breyting yrði ekki á körfulánunum .
Og hvernig er það með þinn umtalaða kreppubotn , því þú talaðir um að við værum nánast komin á botninn fyrir , hvað , 4-6 vikum síðan - er ekki betra , heiðurs þíns vegna , að spara yfirlýsingarnar ?
Annað ; því í ósköpunum er hægt að afskrifa milljarða á milljarða ofan hjá útrásarvíkingunum , en þegar farið er framm á að milljónir verði afskrifaðar fyrir hinn almenna íslending , þá fara bankarnir á hausinn !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Er þetta sú speki sem þú lærðir í þínum framhaldsskóla ?
Mikið er ég hamingjusamur að hafa ekki höfuðbúnað í að skilja svona "fróðleik" .
![]() |
Hefðu lækkað vexti meira |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
lau. 19.6.2010
- Því fær Bessastaðatrúðurinn
ekki stórasta riddarakrossinn fyrir að detta af baki , og það í tvígang í það minnsta , með skakkaföllum ?
Já og Hádegismóri og Kvótadóri ættu að fá stóran riddarakross fyrir að komast hjá fangelsisvist fyrir að ákveða það fyrir íslenska þjóð að hún styddi innrásina í Írak , Ingibjörg Sólrún fyrir að hlusta afar "vel" á þjóð sína , Geir Haarde (Konni) fyrir að gera akkúrat ekki neitt nema illt af sér , öll styrkjafíflin er enn sitja í Þjóðarleikhúsinu og fynnst ekkert sjálfsagðara , Flón Ásgeir Jóhannesson fyrir að ná sér í góða og ódýra klappstýru að Bessastöðum og gera heiðarlega tilraun til að setja íslenska þjóð á hausinn Jóhannes Jónsson , sem og alla hina útrásarvíkingana fyrir hið sama sem og að hafa stundað stórkostlega þjófnaði af íslenskri þjóð , sjálfgræðgis FL flokkinn fyrir frábært aðgerðarleysi í að koma sínum topp styrkjafíflum út úr Þjóðarleikhúsinu og þar með súkkulaðidrengnum úr Engey sem er stórkostlegur snillingur í því að sjá flísina í augum annarra en ekki bjálkana í sínum eigin.
Já siðferðið og réttlætið er ekki fyrir alla að skilja , sér í lagi í pólitíkinni á Íslandi .
![]() |
Tólf fengu Fálkaorðuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 11.6.2010
- Gæti hugsast að lög og regla hræðist
afturgöngu Skyrgáms ? Sé svo - því taka þeir sjálfir , þá ekki að sér hlutverk Skyrgáms , þeir eru hvort eð er hundóánægðir með launakjör sín og jú vissulega þá eru það aðalleikarar þessa skers , sem hafa með þeirra launamál að gera .
Þið varðstjórar og aðrir hirðstjórar , er á rassinum sitjið niður við Hlemmtorg ! Blessaðir drífið ykkur úr dressinu svarta og í stellingar við að hræra skyrið - ein smá tillaga ; gæti vel trúað að skyrhræringurinn reyndist betri því samloðunin er mun meiri þar en í skyrinu - þá fer minna til spillis .
Geir Jón fer létt með að stjórna verkinu .
![]() |
Verður Dómkirkjunni lokað? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 11.6.2010
- Hjörleifur pilla þú þér í burtu !
Það er deginum ljósara , að þú sérð lítið , eða ekkert , athugavert við svona sukk , því væri annað staðreynd , þá létir þú ekki slíkt ske í dag , þú Hjörleifur ert greinilega enn á ártalinu 2007 og því væri heillavænlegast , hvort sem þú hefur greind til að sjá slíkt eður ei , fyrir þig að standa upp úr stól þínum og setjast ekki í hann aftur , enda er þetta , pottþétt , eitt af þeim "embættum" sem á að leggja niður , því dagsverk þín mælast örugglega í gagnslausum fundum , og " ekki við " starfi .
Hjörleifur og þið hin er aðhyllist 2007 stefnuna ! Sýnið sjálfum ykkur þá virðingu , sem og öðrum ; Gangið út , ykkar er ekki vænst í okkar húsum .
![]() |
Hlunnindi hjá OR munu breytast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mið. 9.6.2010
- Áreiðanlegar heimildir Seðlabankastjóra Más
Guðmundssonar herma , að hann sé ekki á leiðinni í gjaldþrot - ekki í bráð , að minnsta kosti , svo þetta getur ekki verið sannleikanum samkvæmt , og allt í lukkunnar velstandi ; Gjaldborg Tjaldborg með sín 1450 þúsund á mánuði , já og hinir leikararnir litlu neðar svo verjum þá mikilvægu Skjaldborg er niður við Austurvöll situr með sína ofurstyrki sem hver borgar ?
Já verjum S T Y R K J A F Í F L I N , það er okkar S K J A L D B O R G í dag .
Hvernig í ósköpunum getur það staðist , að enn þann dag í dag er til fólk , sem ver gjörðir þessarra leikara er við Austurvöll situr í stólum S Í N U M og eyðir fé ríkisins í fávitaskap , í allt annað en taka til í eigin ranni , og ástæða aðgerðaleysisins er sáraeinföld ; jú mikið vill meira .
Endilega haldið áfram á sömu braut með ykkar S K J A L D B O R G sem er ekki til viðtals við fífl eins og mig .
![]() |
Um 22 þúsund á vanskilaskrá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 8.6.2010
- Hvenær verður Þjóðarleikhúsið nógu barnvænn
sandkassi , svo öllum leikurum Þjóðarleikhússins líki ?
Sjálfsagt verður það seint - eða aldrei , en mér er spurn ; hvort er þetta vinnustaður , eða þá leikskóli ?
Sennilega er svarið leikskóli , því t.d. er það vaninn , að á vinnustöðum er stimpilklukka - hana er ekki að fynna innann veggja Þjóðarleikhússins - einnig má bæta þeirri staðreynd við , að það gilda allt aðrar reglur um leikara Þjóðarleikhússins , annars vegar , og sauðsvartann almúgann , hinns vegar , það vita þeir er heimsækja hina svo kölluðu þinghússpalla , því þú skalt úr yfirhöfn , skilja eftirsíma , þó svo leikararnir hafi síma sína í hinni mjög svo "erfiðu" vinnu í SANDKASSANUM .
Eigum við nokkuð að fara að minnast á hinar "fáu" og "bráðnauðsynlegu" NEFNDIR , þær voru BARA 930 fyrir átta og hálfu ári síðan og sumar komu aldrei saman .
Getur það verið að leikarar Þjóðarleikhússins telji S T Y R K I N A sjálfsagðari en siðferðið , þá er ég ekki að tala um pólitískt siðferði .
![]() |
Óbarnvænt Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 31.5.2010
- Hrossatað er mun betra til ræktunar ,
sé það staðið , en sé það nýlegt og grænt brennir það gróðurinn og skaðar hann , en í Þjóðarleikhúsinu er fólk sem skynjar ekki þann raunveruleika að þau eru búin að skaða íslenskt samfélag mörgum mörgum mörgum sinnum meira , en nokkru sinni óstaðið hrossatað getur skaðað gróðurinn , þetta siðblinda fólk skynjar ekki reiðina í þjóðfélaginu , reiðina yfir öllum þeim styrkþegum sem í Þjóðarleikhúsinu sitja , sitja og sitja. Allir þeir flokkar sem innihalda styrkjafíflin , virðast ekki skynja , að þeir eru samsekir , því þeirra V A R að losa sig við hroðann , nú er það allt allt allt of seint .
Styrkjakóngarnir eru innann raða FL-flokksins þar trónir Guðlaugur Þór og æpir að öllum öðrum , hvar sem hann getur fundið pólitíska misfellu á , en að hann og hanns líkar líti í spegil ; spegill hvað er nú það ?
Mín æðsta ósk er að allir þeir flokkar sem innihalda styrkjafíflin , missi fylgi svo nemi yfir 50% frá síðustu alþ.kosningum , en mér vitandi þá eru þetta Sjálfstæðisflokkur , Samfylking og Framsókn.
Kjósandi góður ég ætla rétt að vona að þú áttir þig á alvöru málsins , þótt þrjú ár sé til alþ.kosninga , þá er ekki ráð nema í tíma sé tekið . -
Framm að kosningum getum við mætt nið´r á Austurvöll fyrir utan Þjóðarleikhúsið og mótmælt Gjaldborg Tjaldborg , mótmælt fíflalátunum sem viðgangast innann veggja þessa leikhúss (þ.e. sandkassaleiknum) eða mótmælt öllum þeim skít sem yfirfyllir Þjóðarleikhúsið , mótmælt fólkinu sem otar "réttlætinu" að því fólki (níumenningunum t.d.) sem dirfist að tjá sig á opinberum vettvangi um fíflalæti þessarra leikara , og þetta sama fólk tók , í sumum tilfellum , þátt í mótmælum á þingpöllum hér á árum áður , eins og t.d. Ásta Ragnheiður og Össur , - já svona er blindan mikil , það sér ekki sjálft sig , og því síður að þetta dót kunni að skammast sín , en það kann hrossataðið ekki heldur .
![]() |
Þingmenn breyti tungutaki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 31.5.2010
- D A G U R ! Eru breytingarnar þær ,
að þú ætlir nú , alfarið , að hætta að mæta á fundi , en eftir því sem fréttir herma , þá hafa þínar fundarmætingar verið afar brokkgengar undanfarin ár - er það breytingin sem við megum eiga vona á , þú sjálfumglaði stjórnmálamaður með reynslu , og S T Y R K Þ E G I ?
![]() |
Dagur ætlar ekki að segja af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |