mið. 26.1.2011
Auðvitað er þetta lang viturlegasta leiðin , eeeen
yrði hún ofan á , þá stæði örugglega ekki á FL-fokks mönnum að kæra þá aðferð , því ekki skiptir þá máli hvað bullið í þeim kostar þjóðina , það eina sem þar skiptir máli er að moka skít yfir þeirra eiginn skít , sem vaðið hefir út um allt þjófafélagið s.l. ár .
Svo sér fólkið í landinu helstu vonarglætuna innann veggja þessa alræmda FL-fokks , ekki ætla ég að hrósa , né taka upp hanskann fyrir bankastjórninni sem nú er við völd , en lengi getur vont
V E R S N A Ð .
Verði skipaðir í stjórnarskrárnefnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 26.1.2011
Alveg er það alvarlegt
að enn skuli fynnast hér Héraðsdómslögmenn sem sætta sig ekki við , að fullnustu , allann þann þjófnað sem dunið hefur yfir þjóðina síðast liðin ár af hendi þessarra skrautlegu útrásarvíkinga .
Aumingjans útrásarvíkingarnir - hvers eiga þeir að gjalda ?
Greiðslum Baugs til lögmanns rift | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 21.1.2011
Elsku vinur upp með húmorinn !
Dönsum HRUNA-dansinn kring um FL-fokkinn , þann er inniheldur aðalstyrkjafíflin , þann er inniheldur vafningalausan formann (ef formann skildi kalla) , þann er ber meginábyrgð á gróðærinu og AFLEIÐINGUM þess .
Ójá - mörg eru þess dæmin að fólk er fífl .
Fylgi Sjálfstæðisflokks eykst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 21.1.2011
Endilega Hreggviður!
Einnig þarf að reisa minnisvarða um þrekvirki Kvótadóra og Bubba kóngs er þeir lögðu blessun sína yfir innrásina í Írak fyrir hönd hinnar íslensku þjóðar , sem og reisa minnisvarða um þína stórmerkilegu áskorun .
Allir alsherjar blessi þig og FL-flokkinn .
Vill heiðra minningu lögreglumanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 31.12.2010
Ég hefði viljað sjá
styttunni snúið , þannig að hún snéri út að Austurstræti , vegna fyrirunninnar viðingar , er leikarar Þjóðarleikhússins hafa unnið sér inn hjá þjóðinni , nei fyrirgefið ég gleymdi mér , hún situr víst inn í Þjóðarleikhúsinu þ.e.a.s. þjóðin , því ekki er sauðheimskur almúginn þjóðin það vitum við eftir fundinn í Háskólabíói 2008 .
Í lokin vil ég óska ykkur öllum sem heimsótt hafa síðu mína gleðilegrar jólarestar , sem og von um að nýja árið veiti ykkur alla þá hugsanlegu hamingju sem og gleði sem hugsanleg er , já og jafnvel aðeins betra en það - megi dýrð og dásemd vera með ykkur öllum og þúsund og ein þökk fyrir inkíkkið á líðandi árum. Megi guð (og ég) vera með ykkur.
Merking sett á styttu Jóns Sigurðssonar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 1.12.2010
Víst ert þú kóngur Gulli klár -
konungur STYRKJAFÍFLA um eilíf ár
konungur bulls og lyga er ,
í leikhúsi þjóðar sannur sér .
Vilja frekari upplýsingar um sparnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sun. 28.11.2010
Sigurður Fári !
Far þú rétt með , og orða þú hlutina réttum orðum ; þetta er áfall fyrir ykkur , þessa 63 leikara sem sitjið í Þjóðarleikhúsinu , því ykkar er "sóminn" , þ.e. þið eruð ástæðan fyrir þessari dræmu kosningu , en auðvitað hvorki skilur þú , né skynjar slíkt .
Fólk treystir ykkur fyrir því 100% , að komi eitthvað af viti frá stjórnlagaþinginu , sem mjög trúlaga mun ske , því þarna var upp til hópa afar frambærilegt fólk í framboði , þá munuð þið fella þá tillögu , því það er reynslan sem fólkið hefur af ykkur , þessum "djúphyggnu" kvartvitum sem fylla sali Þjóðarleikhússins .
Staðreyndirnar tala sínu máli ; nánast öll styrkjafíflin sitja áfram í stólum "sínum" í Þjóðarleikhúsinu , þið einir fáið að bera farsíma í Þjóðarleikhúsinu , skiptir þá engu máli þó það sé verið að sjónvarpa frá Þjóðarleikhúsinu og sá ykkar úr leikarastéttinni sem í ræðustól stendur sé með farsímann í vasanum er veldur því að öskrandi sónn glymur í þeim sjónvörpum sem stillt eru á þessu leikhússatriði sem frá ykkur fara .
Nei Sigurður í Fári , líttu í gaupnir þér og SKAMMAST ÞÚ ÞÍN , KUNNIR ÞÚ ÞAÐ .
Halt þú áfram að standa þig í sandkassaleiknum í leikskólanum .
Kosningaþátttakan áfall fyrir Jóhönnu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 25.11.2010
Muni ég rétt , þá
var það Fréttatíminn , sem fjallaði um skuldir Marinós - og er það mat mitt að menn , þar á bæ , yxu að verðleikum , ef þeir , þ.e. eigendurnir , bæðu Marinó afsökunar á ruglinu , því stundum er sannleikurinn þannig vaxinn að glórulaust er um hann að fjalla , enda er það mitt mat að blaðamennirnir/blaðamaðurinn hefði eins getað fjallað um sitt eigið kynlíf , eins og að fjalla um þetta .
Svona ekkifréttir eru afar slæm auglýsing fyrir blaðið . Sagt er , að ein slæm auglýsing kosti 30 góðar auglýsinar - ekki dónalegt fyrir blaðið - nýkomið á markað .
Að lokum vil ég þakka Marinó fyrir vel unnin störf í margra þágu , en var rétt af honum að hætta ?
Harma fjölmiðlaatgang vegna Marinós | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 22.11.2010
Rjómakaramellur - uþb. 40 stk.
1 msk. smjör/smjörlíki
2 dl. rjómi
2 dl. sykur
1 dl. ljóst síróp
1 tsk. vanillusykur
Í formið 1 tsk. matarolía
1. Bræðið smjörið í potti , setjið rjómann , sykurinn og sírópið saman við . Sjóðið við vægan hita þar til karamellan er farin að þykkna vel , mikilvægt er að hræra nánast stanslaust , hrærið vanillusykri saman við - Varúð !! Karamellan er sjóðheit og festist við það er hún slettist á .
2. Látið nokkra dropa af karamellu leka í könnu með köldu vatni til að athuga hvort karamellan sé tilbúin , getir þú búið til litlar kúlur úr kaldri karamellunni , þá er hún tilbúin .
3. Varúð !! Karamellan brennir illilega . Smyrjið lítið form með matarolíunni , eða notið smjörpappír , hellið karamellunni í formið/á pappírinn .
4. Þegar karamellan er orðin köld , þá klippið/skerið hana í mátulega stóra bita , vefjið síðan bitunum í plast . Þessar karamellur eru æði fyrir börn á öllum aldri .
mán. 22.11.2010
Skalla-Grímur !
Muni ég rétt , þá var það eitt af aðalslagorðum þessarar bankastjórnar þinnar : " Allt upp á borðið " , - svo hvað er málið ?
Í gvöðs almáttugs bænum far þú aftur inn í hausaskiptaherbergið í Þjóðarleikhúsinu .
Sakar Barnaverndarstofu um að leka póstunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |