mán. 28.2.2011
Alvarlegur skortur á dómgreind
ef menn álpast í sama hjólfarið , enn og aftur , að kjósa yfir sig sama grautinn í sömu skálinni þ.e. fjórFOKKINN , Skalla-Grímur og Gjaldborg Tjaldborg ÁrnaPálsdóttir hafa marg sýnt það að þau víluðu ekki fyrir sér að fara í hausaskiptaaðferð .
Furðu þykir mér þó sæta , hve margir virðast vera búnir að gleyma afrekum FL-FOKKSINS .
Stjórnarflokkarnir ná ekki meirihluta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 27.2.2011
Aldrei fór þá svo -
Hitler er endurborinn . Maðurinn er fársjúkur á heila - sennilega ólæknandi .
Mótmælendur þrengja að Gaddafi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 20.2.2011
Sjálfur mæli ég eindregið með því
Vilhjálmur Egilsson , að þú setjir , eða látir setja heftiplástur fyrir þverrifuna á þér , ellegar þú notir hinn endann á þér er þú mælir orð í fjölmiðla , því hann er mun skárri - þó slæmur sé .
Ábyrgðin liggur hjá þjóðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 20.2.2011
Herra Skalla-Grímur og Gjaldborg Tjaldborg ÁrnaPálsdóttir !
Valdi forsetinn ykkur vonbrigðum , þá verðið þið að drífa ykkur aftur í hausaskiptaherbergið í Þjóðarleikhúsinu , því þetta er það sem þjóðin vill - fyrirgefið ég gleymdi mér andartak , jú þjóðin situr í Þjóðarleikhúsinu .
Það sem vantar inn í þjóðarleikhúsið er viti borið fólk , en það er lítið til af því þar innan veggja , þar blífa bankastjórn og styrkjafífl , öðru fremur , utan örfáir viti bornir einstaklingar .
Ef formaður bankastjórnarinnar væri forsætisráðherra þjóðarinnar þá myndi hún t.d. stíga fram og fordæma launahækkun til handa dómurum þess í stað reynir hún að bera klæði á vopn þeirra er svíður þessi fáránleiki .
Já Gjaldborg Tjaldborg ÁrnaPálsdóttir , margur verður af aurum api .
Væri ekki alveg óhætt af fá fyrst botn í Landsbankafárið áður en afstaða er tekin til Iceslave , eða er landinn svo æstur í að greiða þennann ósóma að það sé aðalmálið að greiða , ekki hvort það sé okkar að greiða , já og ófæddra kynslóða .
Eina skjaldborgin sem fyrirfynnst í landinu , er á Bessastöðum .
Atkvæðagreiðslan verði sem fyrst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sun. 20.2.2011
Herra Ólafur Ragnar - Herra Ólafur Ragnar !
Það verð ég að segja , að þú kemur mér verulega á óvart , því ég hafði enga trú á að þú myndir neita að skrifa undir þessa Iceslave lögleysu .
Herra Ólafur Ragnar Grímsson (Bessastaðatrúður) þú ert maður að meiri - þúsund og ein þökk fyrir að skrifa ekki undir .
Þér til þakklætis segi ég og beini þessum orðum lóðbeint til þín :
"HÚRRA HÚRRA HÚRRA HÚRRA" .
Forsetinn staðfestir ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
lau. 19.2.2011
Langur vegur er frá því ,
að ég sé Sigmundi Erni ætíð sammála , en hvað þetta mál varðar þá er ég honum hjartanlega sammála .
Það var viðtal í kvöldfréttum sjónvarpsins við einhverja kvensnift og tjáði hún landsmönnum að það væri alveg óskaplegt álag á dómarana í dag og ef ættu að vera góðir menn í þessum störfum , þá yrði að borga þeim gott kaup - ja ég segi nú bara : "Margur verður af aurum api"
Vel getur verið að þessi kvensnift telji sig vita að hún fari með rétt mál , en ég er ekki í nokkrum vafa um að þótt launin yrðu hækkuð um milljón á mánuði , þá yrðu mennirnir í þessum störfum ekki hótinu betri en þeir eru í dag , ef eitthvað væri þá versnuðu þeir .
Það hefur löngum þótt betra að veifa priki röngu en öngvu .
Viðurstyggileg móðgun við landsmenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 8.2.2011
Mikil lifandis ósköp
getur hann Gísli látið illa , hann vill að hið guðlega vald komi ekki nálægt dómnum - nei alveg rétt , já afsakið - hið guðlega vald er væntanlega upp í Hádegismóum .
Jón Steinar víki sökum vanhæfis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 4.2.2011
Byggjum upp -
já byggjum upp nýja Ísland og fjölgum í ráðuneytunum , þarf ekki að fjölga í sendiÓráðunum líka?
Svo þarf endilega að bæta öðrum skrifstofustjóra við í Þjóðarleihúsið , því ég er búinn að bíða eftir símtali frá skrifstofustjóranum síðan í vor , það leynir sér ekki að blessaður maðurinn , mig minnir að hann heiti Helgi Bernódusson , sér ekki framm úr verkefnunum .
Hrópum ferfalt húrra fyrir niðurskurðinum í þjóðfélaginu og uppbyggingunni í ráðuneytunum .
Bragi Kristjónsson vissi hvað hann söng er hann sagði að það ætti að byrja á að reka alla stjóra , aðra en strætisvagnstjóra , hjá því opinbera , því ef maður ætlaði að ónáða þá með nærveru sinni , þá væru þeir ekki við ellegar á fundi , þetta væri í nánast 100% tilfella , sem er laukrétt .
Fjórir nýir skrifstofustjórar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 1.2.2011
Er þessi skoðun
FL-fokks formannsins með öllu vafningalaus ?
Ekki mæli ég með því , að bankastjórn sé æðsta valdið í landinu , en viljum við fá vafninga , STYRKJAFÍFL , eiginhagsmunapotara er einskis (eða fás) svífast við til að koma sinni eigin ár fyrir borð , og skiptir þá engu hvað slíkt kostar þjóðfélagið ?
Staðreyndin er einfaldlega sú ; að lengi getur vont versnað - guð blessi FL-fokkinn .
Miklar áhyggjur af íslensku þjóðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 28.1.2011
You eint síín nothing yet !
Katla is sleeping - when she wakes up then - - - - - - -- - -- - - -- -
Efnahagsbatinn fram úr væntingum manna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |