Það eru aldagamlar staðreyndir ,

  að rottur flýja sökkvandi skip .
mbl.is Segir skilið við Frjálslynda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" Hugarfarið sem heiminum stafaði mest hætta af "

     Ég vil byrja á því að biðja alla aðkomandi aðila afsökunar á að ég leifi mér að skrifa um orð löngu látinns manns , en annað leifir ekki , fyrst verið er að birta þennann líka stóra sannleik sem kom böndum á "friðarspillana" fyrir sextíu árum , með því að stöðva grjótkast " afvegaleidda" hópsins á Íslandi . Og hvaða meðulum beytti þessi maður til að koma böndum á upplausnaröflin sem við sína ömurlegu iðju reyndu að spilla "friðnum" hér á landi ? Jú með því að hlera síma blásaklauss fólks , þar á meðal fyrrverandi veðurstofustjóra , sennilega líka síma tengdaföður míns , verður ekki sannað úr þessu . Já þannig skyldi viðhalda vestrænni menningu .                                                           Fyrir ári síðan , fékkst niðurstaða í símahleranirnar , þótt sú niðurstaða hafi engan veginn verið fullnægjandi , enda hefði slíkt aldrei verið hægt að gera , þá gerði "blessuður" dómsmálaráðherran (hermálaóráðherrann) sér lítið fyrir og varði þessar gjörðir fyrirrennara síns , og föður um leið , með skrifum sínum hér á bloggsíðu sinni .                                                                                                         Þá bar forsætisráðherranum að reka þennann mann , SAMSTUNDIS , úr dómsmálaráðherrastólnum , nei þess í stað hampaði hann Bjarna heitnum Benediktssyni , þessum líka "sómamanni" , í sautjánda júní ávarpi sínu , slík framkoma hefði ekki einu sinni viðgengist á Ítalíu , þar sem mafín blómstrar mót sinni kúgunarsólu .  Það er með ólíkindum hvað símahleranirnar fengu litla umfjöllun í fjölmiðlunum , því í raun , þá er það langt því frá lítið mál að ráðast inn í einkalíf blásaklauss fólks .                                                                                                                                     Það er ekki mín sterkasta hlið að úthrópa látið fólk , en nauðsyn brýtur þá reglu í þetta skiptið . Hvað hefði þessi maður sagt um Búsáhaldabyltinguna ? Eitthvað verra en afvegaleiddur hópur , og ég er hreykinn af að tilheyra þeim . Ætli það sé sími í Engey ? Errm
mbl.is Annað hvort njóta allir friðar eða enginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var ræðunni útvarpað

 beint frá Kína , ætli Kaupþing hafi borgað farmiðann ? Kannski flugmiðinn hafi verið aðra leiðina , ja maður spyr sig Errm .
mbl.is Þorgerður Katrín ræðumaður landsfundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kreppan á 21.öld.

 Síðustu mánuði hefur sú hugsun , stundum , komið í hug minn , hve slæm og hve mikil þessi kreppa sé , miðað við lífsafkomu fólks á Íslandi , þó ekki sé nema fyrir svona fjörutíu árum , hvað þá miðað við fyrri hluta síðustu aldar . Eins og margur veit , þó ekki allir , þá eru einungis sextíu til sjötíu ár síðan þjóðin kom út úr torfbæjunum ; ekkert rafmagn , ekkert heitt vatn , jafnvel ekkert kalt , þurfti að bera það í bæinn utan úr læk , eða það var handdæla . Húsið byggt úr grjóti og torfi , já torfið var einangrunin . Fólk kveikti ekki á útvarpi , né sjónvarpi og gat skipt um hundrað rásir , þar til það fann eitthvað áhugavert , efnaðra fólk átti bíl , ekki bíla , samkomuhúsin voru kirkjur landsins , já kirkjur landsins voru menningarmiðstöðvarnar . Veðráttan sl. þrjátíu ár hefur gjörbreyst á landinu frá því sem áður var , því t.d. í Reykjavík hafa ekki komið snjóavetrar utan sennilega tveir á þessum síðustu þrjátíu árum , svo einhvern tímann hefur verið sofið undir frostmarki í þessum bæjum . Og merkilegt nokk , öldum saman hafði þjóðin  þennan "lífsstíl" , og engin var kreppan . Stundum er gott að líta um öxl , og hugsa .

Í skugga ræðu Baldurs og svars Konna kusu

 sjálfstæðismenn sér formann , og þeir glönsuðu sig af því , að kjósa sér verri kostinn , ekki að undra , því þeir hafa efalaust kosið samkvæmt sinni sannfæringu og höfuðvexti . N 1 vitleysan . Gott hjá þeim .

Spaugstofan er búin að vera að í tuttugu ár (1989-2009) ,

 og enn þann dag í dag veldur hún magakrampa hjá mér og mörgum öðrum , og svei mér þá ég held þeir hafi aldrei verið eins góðir og nú í Kreppunni . Svo segja þeir í söngnum : "Það gengur bara betur næst" , ja ef svo verður , hvernig verður það , því ef þeir verða betri , þá verða þeir verri . Eitt fynnst mér pínu fyndið í sambandi við þá Spaugstofumenn , hvernig sól hvers og eins þeirra hefur risið og hnigið til skiptis , jú eins og mynni mitt segir til um , þá var Sigurður Sigurjóns aðalstjarnan áður með Ragnar reykás "klámhundin" Kristján heiti ég Jónsson , svo Örn í hlutverkum "Baldurs" og "Konna" fyrir utan allar hinar rullurnar hjá honum , svo Pálmi í hinum og þessum rullum , að ógleymdum aðalhöfindinum í hlutverki "bíbí" og síðast en ekki síst núverandi forsætisráðherra Jóhönnu Sig. jú hann sjálfur Karl Ágúst Úlfsson . Sem betur fer , þá mæta þeir til leiks í haust , ég bíð spenntur .

Getan á alltaf að fylgja götu heiðarleikans !

 Ætli þú hafir haft þessi orð að leiðarljósi Bjarni , þegar þú gafst það út í október á síðasta ári , að ykkur þjóðarleikhússleikurunum gæfist ekki tími fyrir jól til að breyta eftirlaunaósómanum ? Já mikil og breið er gata þíns heiðarleika , að ég tali ekki um fyrirgefning synda þinna og eilíft líf Engeyjarslektisins .  Amen .
mbl.is Verðum að halda í vonina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sannlega sannlega segi ég yður ,

 þótt báðir þessir hundar séu norskir að hluta , þá er sá seinni betri og kostar alþingi harla lítið ekki neitt . Enda skóp Baldur ekki þennann hund .
mbl.is Geir kveður og X heilsar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er deginum ljósara ,

 að Rykkornið í sjónvarpsþættinum Kiljunni með Silfur-Agli er þættinum jafnmikilvægt og hálandahöfðinginn í samnefndum þáttum . Hann Bragi er hreint út sagt frábær og ég veit að þar mæli ég fyrir munn margra . Það er ekki skrítið , Bragi , að eldgamlar kellíngar séu á útkíkki er þú ert annars vegar , þó ekki væri nema tóbaksdósin .

                               Taktu í nefið , tvinnahrund

                               til er baukur hlaðinn .

                               Komdu hingað kát í lund

                               og kysstu mig í staðinn . Kissing

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

s


Heiður þingsins !

 Það er ekki lítið fyndið að heyra þig , Konni , tala um heiður þingsins , þú sem afrekaðir það að festa þjóðarleikhússstimpilinn , endanlega , á þetta virðulega hús - já sumum ferst . Svo skalt þú ekki hafa neinar áhyggjur af þér hvað pólitíkina varðar , jú þetta er bara rétt snertilending eins og Konni sagði .
mbl.is Stjórnin hljóp á sig í tveimur málum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband