Össur Skarphéðinsson !

 

 

        Ég vil allra mildilegast benda þér , sem og öðrum á , að það er ekki í þágu íslenskra hagsmuna , að hafa þig á alþingi , hvað þá utanríkisráðherra , ástæðan ; í sjónvarpsþætti sem Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Sigmar (held Guðmundsson) , stýrðu um miðjan apríl (kortéri fyrir kosningar) , þá marg gengu þau á þig og báðu um þitt álit á Bakkaálveri , eftir u.þ.b. tíu mín. atlögu að svari frá þér , kom þetta líka "stórkostlega" svar , og ég held að svarið hafi tekið hálfa sekúndu : "Jánei" ! ? ? ? ?

        Hafir þú ekki getað tekið afstöðu með , af , eða á , þá bar þér að sjálfsögðu að segja það , málið dautt . En Össur Skarphéðinsson , sem engan lætur eiga inni hjá sér , var ekki maður til að svara af hreinskilni , heldur fól svarið í sér svar við því hve "stutt"  hann er búinn að sitja í þjóðarleikhúsinu , m.ö.o. þú ert gegnsýrður spilltur stjórnmálamaður , sem þekkir engann veginn þinn vitjunartíma , og ég leyfi mér um að efast stórlega um , að kunnir að skammast þín .

        Að lokum skal þess getið , að ég skammast mín fyrir að hafa slíkan utanríkisráðherra , en skömmin er þó engin miðað við þá , að ég var svo bláeygur , að ég hafði trú á þér , - far þú norður og niður .


mbl.is Ekki í þágu íslenskra hagsmuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öreigar þessa lands !

 

        Til hamingju með daginn , gangi ykkur allt í haginn .

        Ætli það verði greiddur út arður hjá Granda í tilefni dagsins Pinch ?


Margar og misjafnar

 

 

        eru fásinnurnar sem viðhafast innann  Siðgæðis FL okksins  , auðvitað vissi enginn um útstrikanirnar , frekar en að fleiri en Konni hafi vitað um ofurstyrkina , stórundarlegt að nokkrum detti slík "fásinna" í hug .

        Og því í ósköpunum eru Siðgæðismenn að útstrika náðaðan manninn , og hver náðaði hann ? Það er aldagömul staðreynd ; að líkur sækir líkan heim .

        Mæli með því að  næsti (heila)sellufundur hjá Siðgæðis FL okknum verði haldinn í "litla" bjálkakofanum í Eyjum , því þó hann sé "lítill" , þá mega sáttir sitja þröngt , það skerpir náðunareðlið .


mbl.is Fásinna að útstrikanir hafi verið skipulagðar í Árborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreint hneyksli ,

 

        að þessi maður skuli sitja á þingi , hvað þá ef hann verður ráðherra , sem ég ætla rétt að vona að verði ekki , því í sjónvarpsþætti á rúv. sem Sigmar og Jóhanna Vigdís voru með voru þau búin að reyna að fá Össur til að svara þeirri einföldu spurningu , hver hanns afstæða væri gagnvart Bakkaálveri , þau voru búin að reyna allar tengur í 5-10 mín. , þá kom svarið , og svarið tók hálfa til eina sekúndu , það var : "Já nei" , m.ö.o. , ekkert svar .

        Og ég sem var svo bláeygur að hafa trú á þessum nefapa , nei Össur haf þú skömm fyrir skammarlega framkomu , og ég vona að höfuðvöxtur þinn áorki það að þú hafir vit á því að taka pokann þinn eftir þetta kjörtímabil . Stjórnmálamenn eins og þú eru búnir með límsetutímann á þingi , þar hefur þú ekkert að gera .


mbl.is Össur var næstur falli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" Skrýlslátalausi" styrkveitandi og styrkviðtakandi !

 

 

                                                        Flestir kjósa fé og völd.

                                                        Valdið óttann hrekur.

                                                        Allir dagar eiga kvöld

                                                        og svo nótt við tekur.


mbl.is Fótbrotinn Sjálfstæðisflokkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gæti verið að Þorgerður Kínarín

 

                              hefði viljað bjóða Þráni til Kína , ef hún héldi enn uppi sætaferðum með límsetum ?

        Sumu fólki er afar hollt , og bráðnauðsynlegt að líta í eigin barm , en er þess ekki fært , jafnvel þó utanaðkomandi aðstæður , kosningaúrslitin , myndi kjöraðstæður til slíkra hluta .

        Biturleikinn hjá þingmönnum Siðgæðisf(l)okksins er slíkur , að þeir kenna öðrum um eigin gerðir .

        Eftir N1 vitleysuna úr Engey , litla fjallakofann í eyjum , með viðkomum í Byko og Þjóðleikhúsinu , sætaferðir menntamálaóráðherra til Kína , hermálaóráðherra sem varði símahlerunarhneykslið með haus og hala , N1 vitleysuna sem gaf það út , tveim mánuðum fyrir jólin 2008 , að þjóðarleikhússleikurum gæfist ekki tími , fyrir jól , til að endurskoða eftirlaunaósómann , málþóf á þingi , og þá á ég eftir að tala um leiklistarsýningar Baldurs og Konna , sem "skemmtu" okkur á okkar kostnað .

        Það er staðreynd , að þessi upptalning er engann veginn tæmandi hjá mér , því jafnvel ég gleymi flugeldasýningum þessarra "stórmenna" .

        Svo mæta þessir menn eftir kosningar og æpa hvor upp í annann að  FLokkurinn hafi verið eltur af bæði hundum og köttum , er þetta blessað fólk þá að vísa til sín sjálfs - hlýtur að vera .

        Ég leifi mér að líta svo á að FLokkurinn hafi unnið stórlega í þessum kosningum , með 23,7% fylgi þ.e. 16 þingmenn , hvað má þá Frjálslyndi flokkurinn segja ? 

        Nei þessi FLokkur hefur komist þangað sem hann er á eigin verðleikum , styrkjaverðleikum og með ólíkindum að tæpur fjórðungur þeirra er kusu , skuli kjósa yfir sig SiðgæðisFLokkinn , eftir allt það sem á undan er gengið , slíkt er hneyksli og þjóðarskömm .

        Ég fullyrði það hér og nú , að SiðgæðisFLokkurinn fær 35-40% kjörfylgi í næstu kosningum , því miður , slíkt er pólitískt mynni okkar íslendinga - gullfiskaminni .


mbl.is Þráinn íhugar heiðurslaun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er að horfa á sjónvarpið

 

      og það fer ekki á milli mála að þar er sannleikurinn léttvægur á sumra vörum , því segi ég :

 

                                                  Guðlýgurinn góður er

                                                  gildir sjóða FL-okknum,

                                                  ofursannleik okkur tér

                                                  raupið er í rokknum . 

    


Svona er fólkið ,

 

          sem þjóðin ætlar að kjósa sér á þing á laugardaginn - Er þetta NÝJA-ÍSLAND ?

          Löngum hefur gullfiskaminnið þjakað landann , en muni menn ekki viku aftur í tímann þ.e. á laugardaginn , þá keppist fólk við að kjósa yfir sig sama grautinn í sömu skálinni .

          Hermann Daníelsson varar okkur við þessu með eftirfarandi orðum :

                                            

                                                  Eru þrælar auðs og valda,

                                                  ennþá komnir hér á stjá ?

                                                  Hrindum þeim á klakann kalda

                                                  kölski mætti hirða þá.

 

                                                  Gáfnaljósum geislar frá,

                                                  gjörðum sínum hrósa,

                                                  flýtið ykkur fundinn á,

                                                  foringjana að kjósa.

 

        Kolbeinn Högnason bendir okkur á , í eftirfarandi , að :

 

                                                 Eigi að skapa ástand nýtt

                                                 upp úr þessu flagi ,

                                                 hvítt sé svart og svart sé hvítt

                                                  - svo er allt í lagi .

 

        Gefum sukkinu og svörtu og hvítu frí - við eigum betra skilið . 


mbl.is Steinunn Valdís fékk fjórar milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sukksjóðina á að senda

 

     út í hafsauga og afætur þeirra sömu leið , því farið hefur fé betra , eignir sjóðanna á að útdeila til félagsmannanna .

     Þessir sjóðir voru stofnaðir á sínum tíma með göfugt markmið í huga , en aðalmarkmið stjórnenda sjóðanna síðustu , í rauninni er ekki hægt að taka nein ár út úr sukkinu , því það var byrjað alla vega fyrir 20 árum er formaður lsj Dagsbrúnar og Framsóknar gerðist fingralangur fyrir son sinn , þar á ofan hefur hver sjóðurinn á fætur öðrum farið á höfuðið , vegna fingralengda stjórnenda þessarra sukksjóða sem þeir vissulega voru , eru , og verða , þar til þeir verða lagðir niður .

    Ef nauðsynlegt er að hafa vit fyrir fólki , hvað fjármálin varðar , þá er minnsta mál fyrir stóra bróðir að setja þau lög í landið ; að það skuli tekin tiltekin prósenta af launum hvers og eins og viðkomandi upphæð lögð á bankareikning , sem yrði útgreiðanlegur við 60-67 ára aldurinn . 

    Sukksjóðina burt !


mbl.is Hugsjónamaðurinn Helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stundum þarf bráðnauðsynlega

 

     að setja heftiplástur á sár sumra manna , stundum missa menn frá sér steina er í glerhúsum búa , stundum væri full þörf á að hlera síma sumra manna , stundum er hægt að nota heftiplástur til að loka öðru en sárum . Stundum eiga menn ekki heftiplástur .

     Farið hefur fé betra .


mbl.is Þvermóðska Jóhönnu gerði hana að forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband