þri. 23.6.2009
Hvort verða launin nær ;
40 eða 60 milljónum á ári hjá þessum sukksjóðsmanni ?
Nei höldum áfram þessarri endaleysu með sukksjóðina , því nóg er til af seðlunum í landinu , eða það skyldi maður ætla .
![]() |
Guðmundur ráðinn framkvæmdastjóri LV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kjaramál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þri. 23.6.2009
Siðferðinu samkvæmt -
þá ætti Einar Sveinbjörnsson veðurstofustjóri að segja af sér eftir að hafa sagt þessum yfirmanni upp störfum , en þessir menn starfa nú einu sinni hjá stóra bróður , svo lítt verður úr slíkum framkvæmdum . Ég vil taka það framm , að ég hef ekkert út á störf Einars að setja ( veðurfréttir í sjónvarpi t.d.) , en rétt skal vera rétt . Þar á ofan hefur fólk mis skemmtilega (leiðinlega) rödd sem flytja okkur veðrið í sjónvarpinu , en það er nú önnur saga .
![]() |
Fær miskabætur vegna eineltis á vinnustað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 21.6.2009
Verið þið góð við þríhöfða þursinn !
Sendiherrana , hina mörgu "mikilvægu"fundi ráðherra o.fl. og í þriðja lagi Bessastaðatrúðsins , hver svo sem hann er hverju sinni .
Og enginn úr utanríkisóráðuneytinu fékk orðu hjá Bessastaðatrúðnum nú á dögunum , hvað er að ske á Íslandi ? Ég hef áhyggjur af þessu - ég verð að segja það . Og Jón Ásgeir ekki búinn að fá orðu enn - almáttugur minn - Óli ?
![]() |
Sendiherrum fækkað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 15.6.2009
Gísli , Eiríkur Helgi !
Auðvitað berum við miklar taugar til Íslands - kannski fynnast þar enn nokkrar krónur sem hægt er að ná í - ekki veitir af því nú minnkar rússagullið óðfluga .
Fáum okkur húfur og berum sólina til Íslands í þeim .
![]() |
Verksmiðja Bakkavarar gæti skapað 750 ný störf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 20:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 15.6.2009
Er þetta aðferðin Herra Sigurjón fv. stórbankastjóri -
sem við íslendingar eigum að beita til að sleppa við Iceslave , að mestu eða öllu , eins og þú hefur marg sinnis tekið framm ?
Sumir kunna ekki að skammast sín .
![]() |
Fékk 70 milljóna lán |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 15.6.2009
Mund þú bara örugglega eftir því -
Steingrímur !
Að fjölga þingmönnum , ráðherrum og efla "blessaða" ráðherranefndina , því það eru aðalatriðin fyrir fjárhag íslenskra heimila - já og taka almennilega á þessum lýð sem dirfist að mótmæla þessum líka klassafína Iceslave samningi .
VIÐ BORGUM EKKI SKULDIR ÓREIÐUMANNA !
![]() |
Upplýsingar um niðurskurð veittar í vikunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 15.6.2009
Það er með ólíkindum Gylfi !
Að þetta sé einn og sami maðurinn sem kom framm í Silfrinu og tjáði þar sínar skoðanir , áður en hann settist í ráðherrastól - þú hlýtur að tala nú með öðrum enda en þú gerðir þá .
![]() |
Ekki hægt að snúa ákvörðun við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 15.6.2009
Mér er spurn ?
Hvað þarf þessi "blessaður" lögreglustjóri að gera stórt af sér , til að ástæða verði til að láta "blessaðann" manninn róa ?
ER EKKI KOMIÐ NÓG !
Eru kannski ráðamenn landsins að bíða eftir einhverju tíu sinnum verra en Búsáhaldahreyfingunni ?
![]() |
Nokkrir handteknir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 18.5.2009
Þríhöfða þursinn lengi lifi !
Húrra - húrra - húrra - húrra !
Því hvað er þetta annað en þríhöfða þurs ; Bessastaðatrúðurinn (hver svo sem þar situr) , hinar mörgu og stórmikilvægu fundarferðir ráðherra og sendiónefnda og að lokum sendióráðin , í sínum "litlu og ódýru" húsakynnum , er nema von að það sé kreppa , þegar ráðamenn þjóðarinnar gera ekkert við svona rugli .
Þið þarna niður á Austurvelli , vaknið til lífsins og farið að vinna fyrir kaupinu ykkar , svo yrði ekki stór skaði , þó ykkur fækkaði í svona þrjátíu , þá þurfið þið kannski heldur ekki að eyða tímanum í að rífast um yfirráðin á fersentimetrunum í þinghúsinu , eins og reynslan sýnir .
![]() |
Sendiráðið í París flytur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
sun. 10.5.2009
Jóhanna Sigurðardóttir !
Það er alla veganna hundrað daga áætlun hjá mér , að hneykslast á þér , og Steigrími Joð , að skipa þennann líka fína utanríkisráðherra , mann sem er sjálfum sér , sem og allri þjóðinni , til skammar , eftir fáránlega framkomu í sjónvarpsþætti , um miðjan apríl , þ.e. korteri fyrir kosningar , þar sem hann var ynntur eftir afstöðu sinni gagnvart Bakkaálveri , þættinum stýrðu ; Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir , og Sigmar . Þar afhjúpaði Össur þá staðreynd , í beinni , að hann er búinn með sinn tíma á þingi , því hann svaraði aldrei þessarri einföldu spurningu.
Jóhanna ! Tak þér tak - og fjarlæg þú svartan blett á þessarri ríkisstjórn , við allra fyrsta tækifæri , horfir þú á þennann þátt , þá getur þú ómögulega komist að annarri niðurstöðu .