Ragnheiður Ríkharðsdóttir !

 

 

        ég verð að viðurkenna það , að ég hélt þú hefðir meiri mann að geyma en þetta , þegar öllu er á botninn hvolft , þá ert þú ekki hótinu betri en hinir í FL-flokknum , í það minnsta hvað skoðun þína varðar gagnvart þessum sakamönnum , en séu þeir allir saklausir , þá hef ég gerst sakamaður með því einu saman , að draga andann .

        Þessi fáránlega uppákoma þín mun fylgja þér , af minni hálfu , um aldur og ævi - þín er skömmin .

        Um Unni Brá Konráðsdóttur er heldur fátt að segja , annað en þetta er stelpukjáni sem stýrist af kvartvitum FL flokksins , m.ö.o. hún er ekki manneskja , þegar pólitík umræðir, heldur flokksfífl , verði henni að góðu .


mbl.is Umræða um málshöfðun hafin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert skil ég í þér , Þráinn !

 

 

        Ég hélt þú værir meiri skynsemdarmaður en svo , að þú virðist ekki vita , né skynja ; að þú ert ekki þjóðin - þó svo í Þjóðarleikhúsi sitjir .

        Spyr þú bara Gjaldborg Tjaldborg , já og tak mark á henni , hún tekur afstöðu með réttum flokk , hún tekur lóðbeina afstöðu með FL flokknum , þar sem öll aðal styrkjafíflin sem og flestir aðalmeistarar hrunsins blómstra , og sumir þeirra eru enn límdir við stólasetur í Þjóðarleikhúsinu .

        Leikarar í Þjóðarleikhúsinu voru snarir í snúningum , að bera fram ákæru á hendur níu menningunum , sem drýgðu þann alvarlega glæp , að hjálpa leikurunum í Þjóðarleikhúsinu að standa upp úr stólunum SÍNUM , en þegar kemur tillaga um jafn sjálfsagðan hlut og ákæra glæpamenn , sem eru flokkssystkyni þeirra , þá kemur allt annað hljóð í strokkinn .

        Allt upp á borðið - klíkuna og siðleysið líka .

        Afsakið á meðan ég ÆLI .


mbl.is Eins og bandarísk lagasápa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umboðsmaður styrkþega ,

 

 

        með öðrum orðum STYRKJAÞÓRINN sjálfur óskar eftir fundi , það á að ræða fjármál - nokkuð sem hann , já hann einn , er stórséní í .

        Það er eins gott að allir sem einn rjúki upp til handa og fóta , er svona stórséní í fjármálum , að ég tali ekki um mann sem alfarið er laus við eigin hagsmuni tekur til máls .

        Ég mun andaktugur og fullur áhuga fylgjast með stórmenninu sjálfu - kannske ég fái til þess styrk frá FL  .


mbl.is Óskar eftir fundi í viðskiptanefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég var að horfa á Kaþólskuna í hnotskurn ,

 

 

        eða svo gott sem , í sjónvarpinu núna rétt í þessu , myndin heitir The Proposition  (Tilboðið) , og ég verð að viðurkenna að það komu upp atvik í myndinni þar sem ég sá "Herra" Ólaf heitinn Skúlason og sér í lagi kom Geir Waage mér oft fyrir sjónir , ekki síst er presturinn flýtti sér til eiginkonu annars manns , sem reyndar var föðurbróðir hanns , því hann þurfti að "skrifta" inn í hana með "pennanum" sínum sem gaf svo vel að úr þeirri skrift urðu tvíburar , sem að vísu kostuðu móðurina lífið .

       Vel má líta á þessa mynd sem háð á kaþólskuna , en engu að síður - og kannske þess vegna , þá var hún góð .

        Þarna kom framm hugmyndin að Guð allshejar (eða er það bara drottin) er kona , einhverrra hluta vegna , væntanlega vegna heimsku , þá hef ég lengi álitið Guð vera hvorugkyns , það kyn er jú líka kyn þótt kynlegt megi teljast .

        Því meir sem ég eldist og kynnist trú og trúarháttum , sér í lagi svona líka sérkennilegum skriftum sem framkvæmdar voru í myndinni , því vissulega atvikast svona atburðir , þá aðhyllist ég alltaf meir og meir versið sem móðir mín kenndi mér :

 

                                                Trúðu á tvennt í heimi

                                           tign sem æðsta ber ;

                                           Guð í alheimsgeimi ,

                                           Guð í sjálfum þér .

 

        Gætum þess að trúa á réttan Guð og sér í lagi að kyngreina hann/hana/það rétt . 


Var níumenningunum boðið

 

 

        á fund Samfó - smeykur er ég um að það hafi alveg "gleymst" , eða hví skildi þeim ekki hafa verið boðið að segja skoðun sína á "innbrotinu" alvarlega í Þjóðarleikhúsinu  2008 , jú - einföld ástæða ; það hefur aldrei verið sama hér á Ísa köldu landi , hvort um væri að ræða Jón eða séra Jón .

       Níumenningarnir ætluðu einfaldlega að hjálpa "fólki" að standa upp úr stólum "sínum" í Þjóðarleikhúsinu - það er meira en ISG orkaði nokkru sinni að gera , enda fann hún aldrei þjóð sína , það sem hún gat fundið var Konni (GeirHHaarde) svo er verið að lögsækja þetta fólk , er ekki mál að linni einhverju af ruglinu hér í landinu ?


mbl.is Samfylkingin frestar þingflokksfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sko kallinn - þetta á hann til ,

 

 

        hann getur greinilega gert fleia en mæra útrásarvíkingana , ellegar hengja medalíur á "stórmenni" landsins , en ekki þekki ég hvort hann hafi átt þann vafasama heiður að hengja eitthvað af orðunum (sjö að ég held) á "blessaðan" biskupinn okkar fyrrverandi .

        Með þessu er hann að gera okkur , að mínum dómi , feikna gagn og honum ber að tjá sig jafnt hérlendis sem erlendis um menn og málefni , t.d. var 100% rétt af honum , á sínum tíma , að tjá okkur um óskapnaðinn sem vegagerðin hefir komist upp með á Vestfjörðum , en vegirnir þar hafa verið stórhættulegir , á okkar mælikvarða , en hvað gerði ekki "stórmennið" úr suðurhafseyjum , Árni Johnsen er Óli tjáði sig um óskapnaðina fyrir vestan , jú hann fór hamförum , það er ekki í eina skiptið sem sá maður mætti og ætti að skammast sín .

        Munum það og virðum , góðir hálsar , fólk á það sem það á - hvort heldur er gott eða illt , jafnvel sjálfur Bessastaðtrúðurinn .


mbl.is Ósanngjarnar kröfur um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir sem fundið geta að Jóni Gnarr

 

 

        vegna þessarra mótmæla , geta ekki verið annað en veruleikafyrrtir með öllu og guð almáttugur blessi slíka menn , því ekki geri ég það .


mbl.is Jón Gnarr gagnrýnir Kínverja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafi þessir feðgar "brotið" það eitt

 

 

        af sér að vera ættaðir frá Kúbu , þá á ekki að linna látum fyrr en þessi óþjóðalýður , sem stendur fyrir innbrotum inn á heimili íslendinga , er flúinn af landi brott , eða þá hreinlega að reka svona ILLMENNI af landi brott , og það þó fyrr hefði verið , svona glæpalýður er ekki betri en sjálfir útrásarvíkingarnir .


mbl.is Úrskurðaður í gæsluvarðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

- Hin lögfræðimentaða heilinda -

 

 

        manneskja , ef manneskju skildi kalla , mun sóma sér vel , já fullvel , á meðal styrkjakónganna .

        Já hún Þorgerður Kínarín veit greinilega ekki að til er hugtak í íslenskri tungu , sem er ; að skammast sín , þetta hefur hún ekki hugmynd um frekar en styrkjakóngarnir er velgja setur stóla í hinu "Háa" Þjóðarleikhúsi .

        Munið , gott fólk að x-a við FL flokkinn í komandi kosningum , því þar eru "bjargvættir" hrunsins geimdir .

        Afsakið á meðan ég Æ L I  .


mbl.is Þorgerður sest aftur á þing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

- Já Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ! -

 

 

        Þú tókst ekki frekar þátt í hruninu , frekar en það hafi verið þjóðin sem þú talaðir við í Háskólabíói , líklega í nóv. 2008 .

        Þú tókst ekki frekar þátt í hruninu frekar en að litla gula hænan hafi bakað brauðið .


mbl.is Átti ekki þátt í hruninu og gat ekki komið í veg fyrir það
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband