sun. 12.9.2010
- Mikið lifandis skelfingar ósköp er gaman -
að vita til þess , að fv. hermálaóráðherra okkar íslendinga , já sjálfur Björn Bjarnason skuli hafa tekið á móti einhverju hermálaómenni hjá Nato er veitti okkur íslendingum þann "heiður" að stíga á íslenska grundu - ætli "stórmennið" Busi hafi veitt okkur þann "heiður" líka um leið ?
En skildi sú gleðistund vera upprunnin að hann sé farinn héðan - betur færi ef hann hefði svo sem einn með sér héðan .
lau. 11.9.2010
- Fróðlegt er að sjá viðbrögð Þjóðarleikhússleikaranna ,
sem dæmi þá vill formaður stæðsta stjórnarflokks landsins , sjálfur formaður FL- flokksins , sjálfur súkkulaðidrengurinn úr Engey - vafningabarnið sjálft (já þessi með englavængina - alsaklaus alfarið vafningalaust) , ellegar blessunin hún Gjaldborg Tjaldborg .
Súkkulaðidrengurinn telur það borðleggjandi að glórulaust sé að draga þessi "stórmenni" til ábyrgðar , áður en dómstólar hafi fjallað um málið , enda hefur HæðstiHæstaréttur úrval FL- flokks - manna að bera svo ekki hreint slæm lending þar , ja í það mynnsta mun betri en dómur almenningsins í landinu , enda hefur slíkt einvörðungu fávita að geyma sem mig og þig , jú og einstaka viti borinn FL - flokksmann , en allt er þetta á "réttri" braut , því FL - flokknum vex , með hverjum deginum , ásmeginn enda höfum við , íslendingar , áratugum saman haft yfir að ráða svokölluðu pólitísku gullfiskaminni , sér í lagi séum við mætt í kjörklefann .
Nei "góðir" Þjóðarleikhússleikarar , haldið áfram að hafa ofurtrú á ykkur og ykkar fáviskulegu gjörðum og haldið áfram að brúka munninn í "vinnunni" ykkar , farið ekki að taka upp á þeirri nýlundu að brúka heilann , sérstaklega ef um framboðsstuðninganamilljónirnar er að ræða og fáránlegar afsagnarkröfur þeim varðandi - þvílík fáviska að fara framm á annað eins .
Þetta leifi ég mér að flokka undir "Lögreglumál" - alveg virðingarlaust .
![]() |
Hrunið ekki rakið til stjórnmála |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 2.9.2010
- Hvernig má það vera ,
að núna , já einmitt núna við þessa frétt , þá heyrist hvorki hósti né stuna frá þessum helbláu hér í bloggheimum , þeim sömu og fóru hamförum ( sem í sjálfu sér var rétt ) þegar Steinunn Valdís þverskallaðist við að segja af sér - hvað skildi nú valda því - sérstök "réttlætiskennd" eða kannske bara heimskan ein ?
Hitt er aftur annað , ég átti aldrei (að eilífu amen) von á öðru en þrásetu frá Guðlýgi Þór , sem og öðrum FL flokks ofurstyrkþegum , en þeirra er skömmin sem og annarra FL flokksmanna , sem og óréttlætið sem hinir helbláu bloggarar , hér , hafa sýnt sér sem öðrum , hafi þeir mína einlægu skömm og svívirðu fyrir , til eilífðarnóns .
![]() |
Sáttir við Steinunni Valdísi en ósáttir með Þorgerði Katrínu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 25.8.2010
- Herra Bessastaðatrúður !
Ég vona að þú mynnist þessarra tveggja , Herra Karls og síra Geirs er kemur að úthlutun orðaorðanna , þeir eiga , undanbragðalaust , Stórriddarakross vísan fyrir að funda um þetta - semsagt tvö stykki , verða þeir ekki örugglega úr skíragulli ?
![]() |
Mun hér eftir sem hingað til hlýða tilkynningaskyldu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sun. 22.8.2010
- Getur orðið stormur í vatnsglasi ?
Ójú - heldur betur , sérstaklega ef um trú eða trúarbrögð er að ræða , það sannast best á sögu Íslands sem og annarra þjóða .
Ef mér er sagt eitthvað í trúnaði , þá er mér sagt það í trúnaði - ef ég væri prestur og mér væri sagt eitthvað í trúnaði , þá er ég prestur sem væri sagt eitthvað í trúnaði , ef ég er maður sem dreg andann , þá er ég maður sem dreg andann .
Ég hef trúað guði fyrir leyndarmáli , eða leyndarmálum ætli ég megi eiga von á að hann (hún - það) verði yfirheyrður í sambandi við það (þau) .
Þegar börn eru velkomin til guðs - þá lít ég svo á að það séu öll börn er eru á aldrinum á milli fæðingar og dauða .
Vissulega eru níðingsverk ógeðsleg , en það breytir ekki þeirri sannfæring minni , að sé manni (og það eru allir sem fæðst hafa - jafnt lifandi sem látnir) sagt eitthvað í trúnaði , þá er það trúnaðarmál - annars er manni ekki sagt það í trúnaði - eða hvað á þá t.d. við um blaðamenn ?
Þessi sannfæring mín kemur ekkert við hvaða skoðun ég aftur á móti hef á einstaklingnum Geir Waage - þannig er nú málið í pottinn búið .
![]() |
Nú þarf Geir Waage að hætta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 18.8.2010
- Eftir svona LESTUR
á frétt telst það ekki fréttnæmt , þó hækka þurfi orkureikningana hjá EIGENDUM þessa SKÍTAFYRIRTÆKIS - já segi og skrifa S K Í T A F Y R I R T Æ K I S um nokkrar krónur .
Hver skyldi svo hafa geð í að vera sálu þessarra STÓRMENNA næstur er þeir , blessaðir , hrökkva upp af ?
Ég held ég æli .
![]() |
Ekki upplýst um kostnað við starfslok |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sun. 15.8.2010
- Þótt ég sé hrifinn af fögrum
málverkum , þá mindi ég seint versla við Pétur Þór Gunnarsson , þó svo ég þekki ekkert til hans , umfram það sem fram hefir komið í fréttum .
Stundum skýn syndin af mönnum .
![]() |
Gallerí Borg grunað um að selja falsað verk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 23.7.2010
- Fari Össur
til Brussel , þá skal hann ekki koma til baka - það er mín eindregna skoðun , því nóg er komið af fjáraustrinum í þetta Skjaldborgarbull .
![]() |
Ekki tímabært að Össur fari til Brussel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 23.7.2010
- Steingrímur hausaskipti !
Hvort ert þú í ríkisstjórn eða BANKASTJÓRN ?
![]() |
Steingrímur: Átti von á þessari niðurstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 23.7.2010
- SKJALDBORGIN skal framkvæmd -
í BÖNKUNUM , en systurnar Gjaldborgin og Tjaldborgin skulu eiga lögheimili sitt á heimilum hinns langsoltna almennings .
Efast svo einhver að þetta er ríkisstjórn BANKANNA , og launaumslaga leikaranna er í Þjóðarleikhúsinu sitja ?
![]() |
Ekki rætt um lagasetningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |