Skítmenni verja skít .

Lögreglan á þessu öreiga skeri er ekki til að verja fólkið , þeir eru til að BERJA fólkið í landinu , það sýndi sig 100% í dag , ég hefði aldrei trúað því að ég ætti eftir að ganga upp að lögreglumanni og segja hann skítmenni . Það gerði ég í dag og er stoltur af því , af hverju ; ég var meisaður við það að verja húsið mitt og ef einhver er ekki með hiksta núna er ég rita þetta þá geta sumir menn ekki fengið hiksta . Óráðamenn þessa lands sitja og sitja og sitja , þeim kemur ekki við hvað skeður á skerinu það sem þeim kemur við er inn í þjóðarleikhúsinu , þeim koma við eftirlaunin sín , hvað þeir hafa í laun , fjölga þingnefndum , og nú hamast sjálfgræðgismenn hver um sig að þegja eða ljúga . Það var viðtal í kastljósinu áðan og þvílíkur málatilbúningur . Síðan kom Stefán Eiríksson og beit skottið af skömminni , því helmingurinn af því sem hann sagði um mótmælin í dag var lygi og restin málatilbúningur . Þessir menn starfa fyrir óráðamenn lýðsins , meðan þjóðin er á spítala út í Svíþjóð , og er svo " fær " í framkomu að hún biður ekki konuna afsökunar sem hún var að tala við á Borgarafundinum í Hásk.bíó , er hún sagði þessi líka "snilldarorð " . Sumir kunna að skammast sín , aðrir ekki . Ef einhver af ykkur hefði , þó ekki væri nema snefil af manndómi í sér í þjóðarleikhúsinu , þá sætuð þið ekki með fjöregg ykkar eftirlaunaósómann í fanginu , sem um hvítvoðung væri að ræða . Ó þið aumu leikarar og leikstjórar sem getið ekki staðið upp , vegna þess þið hafið ekki andlegt þrek í slíkt stórvirki , vegna ykkar var kall sem á tólf ár eftir í ellilaun meisaður í dag , ég vil óska ykkur hjartanlega til hamingju , þið hafið þá fengið einhverju áorkað á tveim árum . Í  lokin vil ég benda Stefáni Eiríkssyni á þá aumu staðreynd að lögreglan er fyrir HRYÐJUVERKAMENNINA  í landinu , og einnig hitt það er skítur á þinghúsi íslendinga , en fyrst og fremst skítur í þinghúsi íslendinga og þeir sem leggjast svo lágt að berja blásaklausann almúgann fyrir það eitt að reyna að hreinsa skítinn úr húsinu með því að dirfast að kalla inn um lokaða glugga á húsinu til þessarra "sómamanna" slíkir árásarmenn eru SKÍTMENNI og á að reka á fyrsta degi ef óráðamenn þessa öreiga skers dirfast einhvern tímann í þessu lífi AÐ STANDA UPP . Skammist ykkar .

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband