Svæfa og gelda

 bara þennan "umboðsmann alþingis" það gengur ekki að maðurinn átti sig ekki á því að við búum í bananalýðveldi , og hann lifir og hrærist í sama þjóðarleikhúsi og ég , ég sjálfur sérfræðingurinn í geldingum og svæfingum . Árni ! Segðu nú "lýðnum hanns Konna" hvað það þýðir að skammast sín , því við erum öll margbúin að gleyma því með ykkur þessa ósómamenn við stjórnvölin . Nei þú berð ekki ábyrgð , berð ekki ábyrgð frekar en allar hinar "skín í rauðar skotthúfurnar" . Sitjið sem fastast þar til "lýðurinn hanns Konna " fær lögregluna til að bera ykkur út , því það er þrautarlendingin , landið er stjórnlaust . Það er óstjórn sem stjórnar landinu og það er verra en ekkert . Einn já EINN ráðherra stenst fyllilega væntingar . Bið að heilsa vini þínum einum af þríhöfða þursanum honum Davíð . Þetta er sómamaður að mörgu leyti , en ég get rétt eins verið á Svörtuloftum eins og hann . Nei útvarp Matthildur á ekki heima á Svörtuloftum þar á að búa maður sem hefur rembst við það í tíu ár að segja "lýðnum hanns Konna" sannleikann , en við hálf daufdumbum eyrum mín og flestra annarra af þeim lýð hann heitir Þorvaldur og er Gylfason Þ.Gíslasonar . Árni stattu upp áður en við lýðurinn fáum lögregluna til að gera það . Já og gleðilegt komandi Kreppuár , og ef óskir mínar rætast þá verður þú með hiksta eitthvað framm á þarnæsta ár . Bon appetit .


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband