mið. 12.5.2010
Þetta er kórrétt -
bæði hjá Ragnari Aðalsteinss. og Bjarna Karlss. , málið einfaldlega er það að Bjarni vill ekki eiga á hættu að vera of dómharður , né vera með sleggjudóma , en á milli orðanna fór ekki á milli mála hvar hugur hanns stóð , hann stóð með fólkinu .
því miður , þá er þetta ekki í fyrsta né síðasta skiptið sem lögreglan gerir illt verra með nærveru sinni , en hvenær átta þeir sig á því .
Á meðan þetta "alvarlega" dómsmál bíður fyrtektar í dómsölum , þá grasserar enn skíturinn á Austurvelli í húsi því er Þjóðarleikhús nefnist , þar þurfa menn ekki að yfirgefa staðinn , þótt þétt sé setinn bekkurinn , né vegna ofurstyrkja - nei ónei , hrópum ferfallt húrra fyrir leikurum Þjóðarleikhússins , hvort heldur þeir eru í sandkassaleikjunum sínum eður ei , með farsímana sína inn í hinu háæruverðuga Þjóðarleikhúsi , þó svo almenningur megi ekki hafa farsíma undir höndum á Þjóðarleikhússpöllunum , það gilda nefnilega tvenn lög og tvennar reglur í landinu ; önnur fyrir Jón , hin fyrir séra Jón .
Eða Skjaldborgin , jú hún er í Þjóðarleikhúsinu , þá þegar hún sést , eða er það Gjaldborg ?
Með 1450þús. í mánaðarlaun og leikhúsið í lukkunnar velstandi , þá er allt í lagi - taka umbeðin viðtöl hjá hinum almenna Jóni - "Til hvers" ? Ég er búinn að bíða í eitt og hálft ár , ég fæ að tala við Skjaldborg Gjaldborg í næsta , eða þarnæsta lífi - lengi "lifi" réttlæti Þjóðarleikhússins .
Átök í héraðsdómi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.