fös. 30.4.2010
Er það lögmál dómarastéttarinnar á Íslandi
að byrja á vitlausum enda ?
Er nokkur ástæða til að dæma skítinn sem í Þjóðarleikhúsinu sat , sem þetta fólk var að reyna að koma út úr húsinu ?
Er nokkur ástæða til að reyna að sjá til þess , að hinn almenni borgari fái að tjá sig um skrípaleikinn sem hefur viðgengist í Þjóðarleikhúsinu , svo fremi það sé gert á friðsamlegum nótum ?
Er lögreglan í landinu til að berja og meisa það fólk , sem dirfist að uppljóstra óánægju sinni um störf leikaranna í Þjóðarleikhúsinu , á friðsaman hátt - nei þetta var náttúrulega ekki á friðsaman hátt því það heyrðist í þeim - þau áttu að ÞEGJA .
Sé hægt að kæra þau vegna óvirðingar við Þjóðarleikhússstarfsemina - hvað má þá segja um "blessaða" leikarana er þeir fara í sandkassaleikina sína inn í hinu háa Þjóðarleikhúsi ?
Það er óhætt að segja það um suma háttsetta menn í þessu landi - þeir kunna ekki að skammast sín .
Lögreglan var tilbúin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.