fös. 8.4.2011
Gæti ekki verið -
að lausnin fælist í að útrýma öllum innherjasvikafjöndum ?
Það gæti verið fróðlegt að heyra þína skoðun á því herra viðskiptaráðherra .
Leggja þarf sundurlyndisfjandann að velli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 7.4.2011
Þetta er mildur dómur ,
því þetta er ekkert annað en þjófnaður og það hjá manni er var í vinnu hjá okkur á meðan hann stal , því alvarlegra er brotið og þessum manni var treyst til að vera einn af ráðamönnum lands og lýðs þá þegar hann framdi þennann verknað .
Það á að taka alla innherja svikara og setja þá í gapastokk nið´r á Austurvelli , Þjóðarleikhússleikurum til aðvörunar . Hugsið ykkur hvað það yrði mikill reiðiléttir á þjóðinni , ef við gætum , eftir að hafa innbirt 1-3 bjóra , veitt þessum "stórmennum" þjóðarinnar frían hárþvott ,svo yrði þetta stórfelldur sjampósparnaður fyrir ríkið .
Yrði Össur bullustrokkur kærður fyrir innherjasvik , þá skildi ég ekki liggja á liði mínu að veita honum frían hárþvott , svo kæmi ægifagur glans á skeggið .
Baldur í 2 ára fangelsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 7.4.2011
Það er 100% öruggt að þú talaðir ekki um ólánsmál ,
nei þú yrðir mun stóryrtari , og það ekki að ósekju , Steingrímur Jóhann Sigfússon - værir þú í stjórnarandstöðu . Það er einnig 100% öruggt að þú talaðir ekki niður þá sem vilja fella þetta ólánskjaftæði í ykkur sem í blankastjórninni dveljið .
Værir þú í stjórnarandstöðu þá væri eitt stórt N E I þitt upphafsorð , værir þú að fjalla um þetta "Ólánsmál" eins og þú hefur kosið að kalla það , síðan þú fórst í þessa blankastjórn að leita að Skjaldborginni með Gjaldborgu Tjaldborgu ÁrnaPálsdóttur .
Vel getur verið að þér hugnist að knésetja þessi orð mín með lögsókn , en eitt er víst ; ég er maður að meiri að segja SANNLEIKANN , það er meira en þeir þora ellegar gera , sem segjast vilja hafa "ALLT UPP Á BORÐINU" .
Fyrir u.þ.b. 27 mánuðum síðan , þá fór ég þess á leit að fá að tala við Gjaldborgu Tjaldborgu , síðast er ég ítrekaði þessa beiðni mína , þá bað ég um að fá að vita , hvort viðtalið færi fram í næsta ellegar þarnæsta lífi , því ég teldi mig vita að það færi ekki fram í þessu jarðlífi - svarið : Þ Ö G N .
Í guðs almáttugs bænum kom þú þér aftur í hausaskiptaherbergið og tak Gjaldborgu Tjaldborgu með þér .
Hverfur ekki þótt ríkisstjórnin fari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 5.4.2011
Ég var að hlusta með öðru eyranu á jáarana
í þættinum um Iceslave í sjónvarpinu og ég verð bara að viðurkenna það eins og er að mér varð flökurt , já flökurt , lá við að ég meira að segja ældi . Ástæðan - jú það virðist vera aðalmálstaður jáaranna að samþykkja þjófnaðinn til að við íslendingar getum haldið áfram að taka lán , þvílíkur málstaður .
Ég hélt í einfeldni minni , að fólki þ.e. öllum sem eru orðnir þurrir - að mestu , á bak við eyrun , skynjuðu orðið að við áttum aldrei að samþykkja Iceslave né heldur AGS , en öðru nær - nú geysast menn fram á kjaftvöllinn í sjónvarpinu :"Við verðum að samþykkja þetta til að við getum átt möguleika á að byggja upp þjóðfélagið hérna með því að taka LÁN " , en að sjálfsögðu þá ætti í stað orðsins "LÁN" , að standa "ÓLÁN" .
Í guðs almáttugs bænum jáarar , gerið eitthvað - farið í jóga og athugið hvort þið þornið ekki á bak við eyrun .
Standa betur vegna neyðarlaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 5.4.2011
- " , , , að auka úrval sálma
eftir konur" , það skyldi þó ekki vera til að heiðra minningu biskupsins sáðuga Ólafs Skúlasonar ?
Þjóðkirkjan ætlar að gera tilraunir með 150 nýja sálma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 5.4.2011
Maður sem pissar upp í vindinn ,
er hann verkfræðingur ?
Strandeyjarhöfn , er það höfn , er það ekki minnisvarði um vindverkfræðing ?
Getum ekki staðið í logni og horft á höfnina lokaða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 4.4.2011
Já takk - tökum lán á lán ofan ,
eða er það ekki aðalástæða þess að við eigum að segja: "Já takk" ?
Aðalmarkmið sumra djúpt þenkjandi "Já-ara" er að koma þessu frá svo að uppbygging geti hafist á voru Ísa-kalda-landi , þ.e að vera lánshæfari , en er það uppbyggileg uppbygging að taka lán ?
Við upptöku nýkrónunnar , fyrir rúmum 30 árum (1.jan. ´81) , þá stóð fólki til boða að breyta lánum sínum , hvort heldur voru Húsnæðis- ellegar lífeyrissjóðslán , þ.e. tekin 1980 eða fyrr . Konan mín hafði tekið hæðsta lánið í sínum lífeyrissjóði , árið 1979 , er var þá 3,3millj. (gamlar) og vorum við að velta fyrir okkur hvort við ættum að breyta láninu , en breytingin fólst í því að gera lánið verðtryggt með föstum vöxtum , en áður voru lánin óverðtryggð með vísitölubundnum vöxtum , muni ég rétt .
Vinnufélagi minn , þá , hafði tekið lífeyrissjóðslán líka sama ár og var hann að leita ráða hjá mér , þ.e. hvað ég ætlaði að gera ;breyta láninu eða ekki . Ég minnist þess ofur vel er hann kom til mín og hafði breytt sínu láni og þurfti aðeins að greiða um 60% miðað við fyrri greiðslu þ.e. hann breytti láninu. Þegar þarna var komið sögu þá var ég nýbúinn að ákveða að breyta ekki láninu , en þessar breitingar voru fegraðar, man ég , í fjölmiðlum . Ég ætla ekki að eyða mörgum lýsingarorðum í orð og hrossahlátur vinnufélaga míns , er ég tjáði honum að ég ætlaði ekki að breita láni konunnar , en fyrstu greiðslur þessara lána var alla jafnan erfitt að yfirstíga , lánlaust .
Ég verð að viðurkenna þá staðreynd að oft dettur mér þessi vinnufélagi minn í hug er ég heyri talað um "Já takk" flokkinn .
Annað: Þegar Íslendingar bjuggu til landhelgi umhverfis Ísland , fyrst eina mílu , þá kostaði hún okkur nokkur mannslíf , "þökk" sé bretum . Þann 1.sept. 1972 færðum við íslendingar land- helgina í 50 mílur , (degi áður en Bobby Fischer varð krýndur heimsmeistari) þrátt fyrir þá staðreynd að Haag dómsstólinn hefði dæmt okkur í óhag , þ.e. láta fiskiskipin óáreitt er væru að veiðum milli 12 og 50 mílnanna , þann 17. ágúst , þ.e. tveim vikum fyrr. Þetta þorskastríð var afar harðvítugt og a.m.k. tvísýnt ef ekki tuttuguogtvísýnt , en varla þarf ég að tjá ykkur , góðir hálsar leikslokin .
Ég ætla að leifa mér að efast um , að landhelgin væri komin út í EINA sjómílu ef "Jáarararnir" hefðu verið í meirihluta þjóðarinnar á þessum ófriðarárum .
Sýnum dómgreind en ekki dómgreindarleysi og étum hákarlinn í auglýsingunni fínu frá "Jáurunum" , enda er hákarlinn bæði Þorra- sem og herramanns matur .
Vilja taka lán fyrir vöxtum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 4.4.2011
Sei sei jú , mikil ósköp
enda segir málshátturinn : "Sannleikanum er hver sárreiðastur".
Ég held ég tjái mig ekki frekar um málið , ég yrði pottþétt kærður - enda eru það helstu rök óráðamannanna , hvort heldur útrasarvíkinga sem og annarra "stórmenna" í dag .
Ummæli dæmd dauð og ómerk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 1.4.2011
Þingeyingar eru afar vel að sigrinum ,
vegna þess að kvensniftin í Akureyrarliðinu svindlaði , hún Hilda Jana , þegar hún var að leika orðin þá sagði hún orðin með vörunum a.m.k. tvisvar , þetta hlýtur fólk að sjá í endursýningu , þannig að þrátt fyrir svindl þá unnu Akureyringar ekki .
Góð stemning í Hofi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 31.3.2011
- Styrkjafíflin
væru menn að meiri , ef þeir hunskuðust út úr Þjóðarleikhúsinu , en á því er tæpast von , því þarna geysar siðleysið og þjófnaður og "menn" depla ekki einu sinni auga .
Fari styrkjafíflin norður og niður , og helst niður fyrir það .
Gæti að virðingu sinni og þingsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |