fim. 16.6.2011
Ég var að hlusta og horfa
á Kastljósið í sjónvarpinu , reyndar lét ég duga annað eyrað , já og það var alveg nóg , því manngreiið hann Karl getur tileinkað sér textan , sem hann skrifaði um Ólaf á sínum tíma , að mestu ef ekki öllu leyti , því hann getur ekki hreinsað sig af þessu , svo má segja um fleiri sem að þessum málum hafa komið -samþöggunin var alger .
Ég vil bæta því við að ég er langt því frá upp með mér af því að vera ekki búinn að yfirgefa þjóðkirkjuna , því það er mitt mat að þessi samþöggun sé það alvarleg að hjá henni verði ekki litið - sama hver á sig hefir skitið.
Mistök að taka að sér sáttahlutverkið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mið. 15.6.2011
Fyrir 24 - 25 árum
síðan , þá heyrði ég af þessum feðgum , eftir þær sögur efaðist ég ekki um að það væru til óheiðarlegir menn á Íslandi - jafnvel menn sem stælu , jafnvel meira en ígildi hangilæris , en faðirinn hafði að venju að gefa nokkra tugi hangilæra fyr hver jól á tímabili - jújú alveg ágætis auglýsing , en hverjir borguðu þessi hangilæri - sem og milljónir/milljarða annarra "hangilæra" ?
Er nema von að manni verði mál að MÍGA ?
Krefur Jón Ásgeir um 15 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 7.6.2011
Frú/Herra Gjaldborg Tjaldborg ÁrnaPálsdóttir !
Samkvæmt orðum þínum : "A L L T U P P Á B O R Ð I Ð" . . . . . . . . . . . . ?
Þar að auki , þá hefur þetta löngum verið þín stofnun - Íbúðalánasjóður .
Ja þarna þrífst ekki spillingin - hjá S A M F O K K I N G U N N I .
Þess utan , þá á að víta ráðherrann Guðbjart Hannesson fyrir að svara ekki fyrr , fyrirspurnin kom í september .
Það er ekki bara Guðlýgurinn sem ætti að yfirgefa Þjóðarleikhúsið .
Það leynist engum að flest ykkar , sem innan veggja Þjóðarleikhússins eruð , eruð með þeim eiginleikum gædd að sum verka ykkar - virðast verða að koma frá ykkar afturenda , jafnvel þótt talandinn sé brúkaður , og ekki vantar skítadauninn , síðan eru verkin misilla skeind .
Með ítarlegar tímaskýrslur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 6.6.2011
Guð blessi
hrunflokkinn F L- fokkinn , hrunstjórnina sem samanstóð af F L- fokknum sem og SAMFOKKINGUNNI með sjálfa þjóðina innanborðs , svo og má guð blessa styrkjafíflin öll , sér í lagi þau er enn sitja í Þjóðarleikhúsinu , einnig þá er njóta niðurfellingar á hlutabréfaskuldum , má þar nefna Þorgerði Kínarínu Gunnarsdóttur .
Þess utan , þá átti að SJÁLDSÖGÐU að ákæra fjórmenningana a.m.k. , Gjaldborg Tjaldborg ÁrnaPálsdóttir svo og Össur Bullustrokkur hefðu mátt vera í kippunni líka , en NEI íslensk pólitík leifir ekki slíka kattahreinsun - aðstendenda VAR ER og VERÐUR SKÖMMIN .
Munið svo - góðir hálsar að keppast um að kjósa þennan blessaða fjórFOKK í komandi kosningum , því þeirra var er og verður ósóminn af þessum SKÍT .
Guð blessi pólitískt minni hins almenna íslendings er í kjörklefann er komið , því þá er það á við stærð minni gullfisks - alls ekki að skila auðu , það gæti hugsanlega leitt til þess að kvarnir sumra Þjóðarleikhússleikara færu af stað , ekki mega þeir við því , þeir gætu fengið höfuðverk .
Skýrslan var aðalheimildin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
lau. 21.5.2011
Talar Joðið í gegn um Gnarrinn ?
Mér brigði ekki ef þessi yfirlýsing hefði komið frá Gnarrinum (og samt kýs ég að kjósa hann) , en úr munni fjármálaráðherra - jesús kristur og allir hanns englar .
Jæja góðir íslendingar , þá vitum við það að það er einvörðungu venjulegt fólk að finna í hinu háæruverðuga Þ J Ó Ð A R L E I K H Ú S I , við sem utan veggja erum erum væntanlega eithvað afbrigðileg .
Það er sama hver fígúran tekur við völdum í þessu leikhúsi , eða svo virðist vera , það er ekki stór munurinn á kúk og skít .
Ekki hjá venjulegu fólki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 12.5.2011
Mörg er mannanna raunin ,
en það vill svo til að ég bý rétt hjá þessum velli og hefi gert í tæp 17 ár . Fyrstu næturnar sem við sváfum hér efra , þá var ég að vakna a næturnar og hélt fyrst að ég hefði heyrt eitthvað og verið væri að brjótast inn til okkar , sperrti eyrun , en nennti ekki upp - fyrst að heyra . Nú nú að lokum komst ég að því hvað það var sem olli því að ég var að vakna ; það var þögnin - já þögnin þessi ÆPANDI ÞÖGN , en það skal tekið fram að þar sem við bjuggum áður (þar láu líka 17 ár) , þar var maður vakinn 7 daga vikunnar með hávaða , er venjulega kom frá ölvuðu fólki , viku eftir viku , mánuð eftir mánuð , ár eftir ár .
Já er það ekki skrítið hvað maður getur vanið sig á ?
Bæta aðstöðuna í Grafarvogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mán. 9.5.2011
Þetta er skelfileg uppákoma -
að ráðast á heimili fólks - og þó svo að leikararnir á Austurvelli hafi oft og einatt hagað sér ósiðsamlega , t.d. eins og börn í sandkassa , þá er það nú mitt mat á Ögmundi að hann sé einna skárstur þessarra leikara og svona framkomu á hann síst skilda .
Ég vil biðja þig/ykkur gerandi/ur góði/r að virða þau sjálfsögðu réttindi fólks , sem ekkert hefir til saka unnið , að láta heimili þeirra í friði - svona framkoma er fyrir neðan allar hellur - jafnvel þó svo að þú/þið eigið þessu embætti eitthvað grátt að gjalda , ef þú/þið ert/eruð partur af þessum íslensku apaköttum sem eitt sinn hétuð Fáfnir , þá segi ég nú bara að það væri meira en lítil landhreinsun ef þið yfirgæfuð landið , því þó svo að Útrásarvíkingarnir séu slæmir og að mínu mati ættu að vera nið´r á sex fetum , þá eruð þið VERRI - ef eitthvað er .
Enginn grunaður um grjótkast | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mán. 2.5.2011
Jújú - það passar ,
nú þyrpast farfuglarnir að landi , en ekki vissi ég það að furðufuglar felldu fjaðrir núna á þessum tíma , enda er það kannske tómur misskilningur , því best gæti ég trúað að sumir furðufuglar missi þær jafnvel 365 daga á ári - nema kannske skrautfjaðrirnar , en þær hefur hann nóg af - þessi furðufugl , en farið hefur fé betra og furðufugl verri .
Sannleikanum er hver sárreiðastur , sér í lagi ef undan svíður .
Styrkjaþór
Suma fuðrar furðum á
aðrir féið þiggja ,
styrkjafíflin fara á stjá
ef sumir sönnu að hyggja .
Furðufuglar fljúga seint
frá þrjóskusetnum setum ,
lygaþvælan fer ei leint
ef lýðskrumið við metum .
Ætlar að stefna Birni Val | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 28.4.2011
Þegar ég heyri minnst á suma menn ,
þá dettur mér stundum í hug það sem gamall nágranni minn , úr æsku , sagði : " Betri er gulur blettur í laki en svartur á þjóðfélagi " .
Þegar maður heyrir þessa tvo menn opna á sér þverrifuna , þá fynnst manni grátklerkurinn vera aftur mættur til starfa - hversu langt er í að þeir fari sömu leið og hann ?
Lokatilraun í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 15.4.2011
Eigi Ásmundur að segja af sér -
ja hvað á þá formaðurinn sjálfur að gera - hafi hann talað með munninum er hann var í stjórnarandstöðu , með hverju talar hann þá eftir að hann settist í þessa blessaða blankastjórn ?
Hitt er svo aftur annað mál , að það væri að fara úr öskunni í eldinn , ef stjórnarandstaðan tæki við og það er sko slétt sama hvort það væri tröllabarnið eða Engeyjarsúkkulaðið , að ég tali ekki um Guðlýg Þór - nei slæmt er það sem við höfum , en mun verra verður það ef þessi blankastjórn fer frá núna .
Helsta ljósið , að mínu mati er Lilja Móses , en ætli færi ekki fyrir henni eins og Gjaldborg Tjaldborg - hún missti alla jarðtengingu og hamaðist við það að gera sem minnst , nema þá helst að bæta við skattaálögurnar .
Ásmundur Einar segi af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |