fös. 13.6.2014
Megi allar sólir skína yfir hinu íslenska réttarkerfi , utan rauðsól og aðrar slíkar.
Það yrði hinu íslenska réttarkerfi til MIKILLAR MINNKUNNAR ef þessi ? kemst upp með allan þann skít sem hinn almenni íslenski borgari hefur mátt punga út fyrir.
Íslenskt mál hefur að geyma hin margvíslegustu orð , svo sem; ónytjungur , þjófur , stórþjófur (og á það orð miklum mun betur við í þessu tilfelli) , lygari , útsmogin , maður er eirir engu .
Legg til að upp verði tekið orðið"Síþjófur"yfir menn sem aldrei hætta að stela , til eru orðatiltæki eins og: Snemma beygist krókurinn , eplið fellur sjaldan langt frá eikinni , eiga þessir málshættir/orðatiltæki afar vel við í þessu tilfelli .
Ætíð er ég heyri hanns mynnst , verður mér mál að míga .
Einn plús veit ég um þessa persónu : Hann eldist.
Segir lögreglumenn brjóta lög | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mán. 28.4.2014
Hinir Guðs útvöldu bankaenglar .
Já það er til háborinnar skammar hvað Sérstakur fer illa með þig aumingja Sigurjón , þú guðs útvaldi , enda voru , eru og munu ætíð verða Guðir þeir Bjórólfarnir , hvað annað ?
Enginn ykkar , sem stýrði bönkunum , báru ábyrgð á hvernig bankarnir fóru lóðbeint á hausinn , nei það voru bara þeir sjálfir helv bankarnir sem það gerðu .
Ég vil ráðleggja þér Sigurjón , EINDREGIÐ , að líta gaumgæfilega í spegil , og horfast í augu við það kvika yndi sem þú sérð , áður en þú ferð að úttala þig um hvað Sérstakur - eða aðrir , eru vondir við þig , þú guðs útvaldi engill .
Aðferðir saksóknara svakalegar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 28.4.2014
Hvaða dóm fær Styrkja-Þór
fyrir óbeinann þjófnað á milljónum , veit ekki hve mörgum , sem hin íslenska þjóð mátti punga út fyrir , eftir að þau fyrirtæki sem styrktu framboð Styrkja-Þórs , fóru lóðbeint á hausinn ?
Það er hinni íslensku þjóð , hvað þá FL-FOKKNUM , til háborinnar skammar að þessi maður skuli enn sitja í Þjóðarleikhúsinu , og þeir sem sáu sig knúna til að kjósa þetta í Þjóðarleikhúsið ættu að láta kíkja á höfuðbúnað sinn , því eitthvað - meira en lítið , er brogað við það fólk er vill hafa slíkann mann í Þjóðarleikhúsinu .
Mál Gunnars Andersen í Hæstarétti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
lau. 5.4.2014
Mistök að milljarður fór inn á eigin reikning - -
já auðvitað mistök , enda eru mistökin mörg í lífi sérhvers manns , stundum skeður til dæmis sá atburður að barn fæðist , og það fyrir algjör mistök !
Ég tel það hollt fyrir Jón Ásgeir að hugsa í hvert eitt sinn er hann lítur í spegil að skárri er gulur blettur í laki , en svartur á þjóðfélagi , hvað þá sótsvartur .
Milljarður millifærður fyrir mistök | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Löggæsla | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
fim. 20.3.2014
Svona fullyrðing; að loftlínur sé hagkvæmari kostur
er álíka vitræn og er Bakkabræður báru dagsbirtuna inn í húfum sínum , því hvernig skyldu þeir hjá Landsneti verðmælt sjónmengun þessarra mastra , þvílíkur óskapnaður
sem þetta nú er í óspilltri náttúrunni ?
Það er slæmt til þess að vita að svona fullyrðing skuli koma framm á 21 öldinni - skyldi þessi útreikningur koma frá verkfræðingi sem mælt hefur með hve miklum þrýstingi hann megi pissa upp í vindinn , til að hafa betur en vindurinn , í svo og svo mörgum metrum pr. sek. , einnig mætti mæla hve oft pr. sek. fara megi með húfuna inn í hús til að ná að bera fulla dagsbirtu inn .
Rekstur raforkukerfisins óviðunandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 18.3.2014
Það er gott ,
að einhver reynir að breyta svona óskapnaði , eða hví í ósköpunum var þetta samþykkt á sínum tíma ?
Svona lagað á ekki að geta átt sér stað á 21. öldinni .
Annars er þetta langt í frá eini óskapnaðurinn sem birtist á voru Fróni , hvað stendur til dæmis til á hálendinu - háspennulínur sem að sjálfsögðu á að grafa í jörðu , nei í staðinn skulu þessi ljótu möstur varða hálendið , þvers og endilangt !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Reynum að hafa hugfast , að við eigum ekki landið , við fengum það einvörðungu lánað til skamms tíma , já afar skamms tíma , litið til allrar sögu landsins .
Sjálfstæðismenn vilja vernda sjónás | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 14.3.2014
Þetta hefur hann örugglega sagt alveg
vafningalaust , enda vafningalaus maður - ekki satt ?
Nei að sjálfsögðu eru allir að oftúlka orð póltíkusar , þegar ætlast er til að hægt sé að taka mark á orðum hanns , þvílík fyrra , það æða allir upp; fjölmiðlar , almúginn , jafnvel þeir sem kusu þennann mann , þeir ætlast til að hægt sé að taka mark á orðum hanns , hvað er að fólki ?
Þetta jaðrar við einelti .
Í gvöðs almáttugs bænum hættið að taka orð pólítíkusa alvarlega , ja í það minnsta orð þeirra er tilheyra fl-fokknum , enda situr Styrkja - Þórinn í Þjóðarleikhúsinu , og ég hef ekki getað annað séð en að fari alveg ágætlega um þann - - .
Munið svo endilega að kjósa þessa snillinga aftur yfir ykkur í næstu kosningum - hrunfokkana - hvað annað .
Sjálfsagt fynnst einhverjum gott að fara úr öskunni í eldinn , en mér fynnst það ekki einu sinni fyndið hvað fólk getur kosið yfir sig .
Segir atkvæðagreiðslu koma til greina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 3.3.2014
Þarna skítur margur
túristinn , en hvað skiptir það kerfið máli , aðalatriðið að byggt sé upp , skítt með útsýni eða þá hvort túristar séu ánægðir hér eða ekki , þetta er jú ein af séreinkennum Reykjavíkur , geta verið uppi á Skólavörðuholti og séð Esjuna að stórum hluta .
Það er eitt annað sem ég vildi hafa orð á; mér fynnst fáránleg staðsetning á að setja háhýsi niður við sjávarsíðuna og eyðilegggja þar með útsýnið hjá öllum þeim íbúum sem á bak við þessi háhýsi búa , eins og t.d. þarna við Skúlagötuna og Lindargötuna , háhýsi þessi á að reisa uppi á hæðum eða í útjöðrum borgar þannig að þau spilli sem minst útsýni annarra íbúa .
Nýbygging skyggir á sjónlínuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 1.3.2014
Hvaða fíflagangur er þetta !
Þegar fólk biður um að ösku þess sé dreift um íslenskar grundir , þá er það vegna afar mikillar væntumþykju til landsins og þá er það þetta sem þessu fólki er sýnt , ja það mætti ætla að framapotarafokkurinn réði þessu , svo arfa vitlaus er þessi ákvörðun .
Sýnið fólki sem hefur það mikla ást til Íslands , sem þessa , pínulítið meiri virðingu , jafnvel þó svo það sé látið , þið reglugerðarpakk , sumar reglur , fyrirgefið óreglur eru ekki til annars en að brjóta þær .
Fá ekki að dreifa ösku látinnar manneskju við vatnið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 26.2.2014
Hún var þó manneskja til að biðjast afsökunar
það er eitthvað sem vafningurinn hefur ekki lært og mun vart úr þessu , því þetta er orðið svo stórmerkilegur maður .
Hver um annann þverann gáfu fl-fokkarar yfirlýsingu fyrir síðustu þjóðarleikhúss kosningar , að þjóðin yrði látin skera úr um hvort halda skyldi viðræðunum áfram - eður ei , en nú er búið að hafa hausaskipti á öllum þessum fl-fokkurum , ekki seinna vænna (verst að hugsunargangurinn hefur ekkert breyst) .
En þessir stjórnarfokkarar sem nú sitja við soðkatlana þurfa ekkert að óttast í næstu kosningum , því allir - utan einstaka blábjáni eins og ég - verða búnir að gleyma hvað á daga þessarar ríkisóstjórnar dreif , það hefur margsinnis sýnt sig , eða fer ekki vel um Styrkja - Þór í þjóðarleikhúsinu , ég hef ekki getað séð annað , merkilegt að hann skuli ekki vera settur Styrkjamálaráðherra , víst færi vel á því .
En í alvöru; það er með eindæmum slík framkoma sem vafningurinn sýndi þarna í þjóðarleikhúsinu í dag og að hann skuli ekki víttur fyrir þetta , það er fyrir neðan allar hellur , en þarna sýndi forseta fokkarinn sitt rétta andlit .
Bað þingmenn að gæta háttvísi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |