sun. 10.5.2009
Össur Skarphéðinsson !
Ég vil allra mildilegast benda þér , sem og öðrum á , að það er ekki í þágu íslenskra hagsmuna , að hafa þig á alþingi , hvað þá utanríkisráðherra , ástæðan ; í sjónvarpsþætti sem Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Sigmar (held Guðmundsson) , stýrðu um miðjan apríl (kortéri fyrir kosningar) , þá marg gengu þau á þig og báðu um þitt álit á Bakkaálveri , eftir u.þ.b. tíu mín. atlögu að svari frá þér , kom þetta líka "stórkostlega" svar , og ég held að svarið hafi tekið hálfa sekúndu : "Jánei" ! ? ? ? ?
Hafir þú ekki getað tekið afstöðu með , af , eða á , þá bar þér að sjálfsögðu að segja það , málið dautt . En Össur Skarphéðinsson , sem engan lætur eiga inni hjá sér , var ekki maður til að svara af hreinskilni , heldur fól svarið í sér svar við því hve "stutt" hann er búinn að sitja í þjóðarleikhúsinu , m.ö.o. þú ert gegnsýrður spilltur stjórnmálamaður , sem þekkir engann veginn þinn vitjunartíma , og ég leyfi mér um að efast stórlega um , að kunnir að skammast þín .
Að lokum skal þess getið , að ég skammast mín fyrir að hafa slíkan utanríkisráðherra , en skömmin er þó engin miðað við þá , að ég var svo bláeygur , að ég hafði trú á þér , - far þú norður og niður .
Ekki í þágu íslenskra hagsmuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sigurbjörg !
Seg þú mér eitt , gerir þú svo "gengdarlausar" kröfur til stjórmálamanna , að þú sést sátt við þetta líka "stórkopstlega" svar ?
Eig þú góðar stundir .
Hörður B Hjartarson, 10.5.2009 kl. 17:04
Sigurbjörg!
Hvorki ég né þú , né nokkur annar , hvar í flokki sem þeir standa , eiga að sætta sig við , að hafa mann á þingi , sem er orðinn svona gegnsýrður af sínu starfsplotti , sem þessu , hvað þá ráðherra .
Ennfremur vil ég benda þér á , eins vil ég benda þér á það sem kemur framm síðast í færslunni hjá mér , um bláeyga manninn .
Þú talar um svar frá honum ; "jánei" , getur aldrei verið svar , " Ég treysti mér (eða get ) ekki til að taka afstöðu" , eru svör , um þetta getum við ekki annað en verið sammála , þó kannski annar aðilinn vilji ekki gangast undir það .
Hörður B Hjartarson, 10.5.2009 kl. 17:29
Sigurbjörg!
Fyrirgefðu , en ég endurtók "Ennfremur vil ég benda þér á!
Eig þú góðar stundir og takk fyrir innlitið .
Hörður B Hjartarson, 10.5.2009 kl. 17:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.