þri. 30.12.2008
Fjármálaeftirlitið já einmitt það
það veitir nú ekki af þeir eru nú heldur betur búnir að vinna fyrir sínum launum á árinu , eða hitt þó heldur , bera ekki ábyrgð frekar en dýralæknirinn , þríhöfða þursinn á Svörtuloftum , Konni eða utanríkisóráðherrann sem "flutti" þjóðina í þjóðarleikhúsið , öll saklaus , það er "lýðurinn hanns Konna" sem ber ábyrgðina , það gefur auga leið því allir aðrir eru saklausir . Nei hækkum launin hjá þeim og eftirlaunaósómann líka . Konni! Stattu þig . Ef ekki væri hér bananalýðveldi þá væruð þið "fjármálaeftirlitið" komnir á atvinnuleysisskrá fyrir lifandis löngu . Skammist ykkar , nei fyrirgefið ég gleymdi mér þið kunnið það ekki , því ef svo væri þá væruð þið löngu farnir frá af sjálfsdáðum . Gleðilegan HIKSTA .
Ýmislegt breytist um áramót | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt 29.3.2009 kl. 12:22 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.