þri. 1.2.2011
Er þessi skoðun
FL-fokks formannsins með öllu vafningalaus ?
Ekki mæli ég með því , að bankastjórn sé æðsta valdið í landinu , en viljum við fá vafninga , STYRKJAFÍFL , eiginhagsmunapotara er einskis (eða fás) svífast við til að koma sinni eigin ár fyrir borð , og skiptir þá engu hvað slíkt kostar þjóðfélagið ?
Staðreyndin er einfaldlega sú ; að lengi getur vont versnað - guð blessi FL-fokkinn .
Miklar áhyggjur af íslensku þjóðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Ertu reiður?
Helga Kristjánsdóttir, 4.2.2011 kl. 00:00
Helga ! Ætli sé ekki best að aðrir dæmi um það , en ég mundi frekar segja að ég væri leiður , sér í lagi á öllu vafningabullinu er kemur frá þessum manni . Annars hef ég ætíð reynt að koma hreint fram við fólk og liggja ekki á mínum skoðunum og hlotið stundum ákúrur fyrir .
Sé ég reiður , þá er það fyrst og fremst út af því að útrásarvíkingarnir vaða enn uppi hér í landinu , t.d. annar aðal"eigandi" Landsbankans - heitins , Björgólfur Thor rekur a.m.k. tvö risafyrirtæki í landinu , á meðan er karpað um ICESLAVE í Þjóðarleikhúsinu - er ekki eitthvað AÐ ?
Kannske er það eina ráðið að segja eins og Steinn sagði :
, , , , , og þótt þú tapir það gerir ekkert til , því það er nefnilega vitlaust gefið .
Hörður B Hjartarson, 4.2.2011 kl. 11:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.