fim. 7.10.2010
ÓMÖGULEGA EFNAHAGSSTEFNU RÍKISSTJÓRNARINNAR !
Bjarni Benediktsson vafningur ! Án þess að hvarfli að mér að verja skítinn sem núverandi ríkisÓstjórn hefur í sér , þá hvarflar ekki að mér að ástandið skáni ef þú , þú með þín skuldum VÖFÐU fyrirtæki , takir við stjórninni með AGS í broddi fylkingar , eða er það heillavænleg efnahagsstefna sem FL- flokkurinn hefur innan borðs?
Afskrifuð kúlulán , afskrifaðir vafningar , ofurstyrkir þar á meðal frá fyrirtækjum sem löngu eru farin á hausinn , á kostnað landans , einróma kosning gegn ákærunum á hendur fjórmenningunm (en það var allra síst ykkar Þjóðarleikhússleikaranna að ákveða um ákærur þið voruð og eruð bullandi bullandi vanhæf og sum samsek) , trúlegt samráð milli ykkar FL-flokks manna og Samfokkingarinnar um að kjósa gegn ákærunum (enda talar sínu máli reiði ykkar í garð Samfokkingarinnar vegna greiddra atkvæða fjórmenninganna) , eða hver bar , ber og mun bera um ókomna tíð , titilinn Hrunfokkur Íslands - jú sjálfur FL-flokkurinn , og af því berð þú , já þú SJÁLFUR stóran "HEIÐUR" .
Sem eftirmála skal ég bæta við , Ásbirni Óttarssyni til mikillar ánægju , að hann mun hafa greitt sér EINVÖRÐUNGU 65 millu arðgreiðslu út úr illa stöndugu sjávarútvegsfyrirtæki sínu , væri ekki ráð að setja mannin á LISTAMANNALAUN ?
Algjör falleinkunn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.