Ég var að reyna að hlusta á Joðið

 

 

          í Kastljósinu núna og það lá við að ég   ÖSKRAÐI   - STEINGRÍMUR JÓHANN SIGFÚSSON ert þú á LYFJUM ?

          Væri ég með öðru hvoru megin við milljón á mánuði , en ekki 150 þúsund , þá gæti ég keypt ódýran nýjan fólksbíl , en ég er því miður ekki þessi VENJULEGI íslendingur  sem enginn eignabruni hefur orðið hjá - en þú þekkir einhverja VENJULEGA íslendinga þar sem enginn eignabruni hefir orðið hjá - því miður þá veit ég ekki um einn einasta íslending þar sem enginn eignabruni hefir orðið hjá.

          Þar fyrir utan þá vil ég benda þér á að þeir íslendingar sem ég þekki , en að sjálfsögðu eru þeir ekki VENJULEGIR  , berjast - að mestu - í bökkum við að komast af án þess að fara á hausinn , en ófáa þekki ég sem eru farnir á hausinn .

          Því spyr ég þig Steingrímur , fyrir okkur þessa óvenjulegu  íslendinga : "ERT ÞÚ Á LYFJUM" ?

          Er ekki vafamál að maður sem lætur frá sér svona bull , eins og þú , sé óhætt að ganga laus - hvað þá að vera einn æðsti (ó)ráðamaður þjóðarinnar ?

          Hvað varð af réttláta og réttsýna manninum sem var í stjórnarandstöðu - hann heitir alla veganna ekki Steingrímur Jóhann Sigfússon í dag , þú ert ekki hótinu skárri en skíturinn sem var fyrir .


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ég slapp við að hlusta á hann,er hrædd um að ég brjóti sjónvarpið,hann skapraunar mér svo   blöðruselurinn sá arna.

Helga Kristjánsdóttir, 24.6.2011 kl. 01:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband