Það er 100% öruggt að þú talaðir ekki um ólánsmál ,

 

 

          nei þú yrðir mun stóryrtari , og það ekki að ósekju , Steingrímur Jóhann Sigfússon - værir þú í stjórnarandstöðu . Það er einnig 100% öruggt að þú talaðir ekki niður þá sem vilja fella þetta ólánskjaftæði í ykkur sem í blankastjórninni dveljið .

          Værir þú í stjórnarandstöðu þá væri eitt stórt       N E I       þitt upphafsorð , værir þú að fjalla um þetta "Ólánsmál" eins og þú hefur kosið að kalla það , síðan þú fórst í þessa blankastjórn að leita að Skjaldborginni með Gjaldborgu Tjaldborgu ÁrnaPálsdóttur .

          Vel getur verið að þér hugnist að knésetja þessi orð mín með lögsókn , en eitt er víst ; ég er maður að meiri að segja SANNLEIKANN , það er meira en þeir þora ellegar gera , sem segjast vilja hafa   "ALLT UPP Á BORÐINU" .

          Fyrir u.þ.b. 27 mánuðum síðan , þá fór ég þess á leit að fá að tala við Gjaldborgu Tjaldborgu , síðast er ég ítrekaði þessa beiðni mína , þá bað ég um að fá að vita , hvort viðtalið færi fram í næsta ellegar þarnæsta lífi , því ég teldi mig vita að það færi ekki fram í þessu jarðlífi - svarið : Þ Ö G N .

          Í guðs almáttugs bænum kom þú þér aftur í hausaskiptaherbergið og tak Gjaldborgu Tjaldborgu með þér .

          


mbl.is Hverfur ekki þótt ríkisstjórnin fari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband