Fleiri villur í lífi voru en málfarsvillur .

Í eina tíð var sjónvarpsfréttamaður er bar af hvað það varðar , að ef hann stýrði þætti þar sem einhver sat fyrir svörum , þá gekk enginn harðar , né lengra framm í því að láta mann/menn svara spurningum sínum , en ekki komast upp með að fara í kring um hlutina eins og köttur í kring um heitan graut.

Nú nú síðan skeður það að þessi frábæri fréttamaður og þáttastjórnadi í sjónvarpinu fer í framboð til alþingis og komst inn , enn er mér í fersku minni hve ég var feginn að hann skyldi vera kominn inn í Þjóðarleikhúsið , því þangað vantaði heldur betur mann sem léti þessa leikara,,,, fá að fynna til tevatnsins , því slík voru skrípalætin , þ.e. áttu það til , þá í hinu háæruverðuga Þjóðarleikhúsi. En hvað skeði - jú það var sem maðurinn hefði misst málið , hefði fengið plástur fyrir munninn eða eitthvað annað í þeim dúr , og vonbrigðin , hjá þessum bloggara hér , þau vantaði ekki og vantar í rauninni ekki enn.

Mikið og misgruggugt vatn hefir runnið til sjávar síðan , sjónvarpsmaðurinn knái orðinn bloggvinur minn og ég veit ekki hvað og hvað , búinn að koma við í sendióráðunum o.fl. o.fl. , en þessir málfarsvillupistlar Eiðs eru meira en lítið af hinu góða og mættum við bloggarar margt og mikið af honum læra , ég t.d. verð , því miður , að viðurkenna þá leti mína að í lang flestum tilfellum þá les ég aldrei bloggið mitt yfir , hvorki áður , né eftir að ég er búinn að senda það á netið.

Já hún getur verið skelfileg letin.

Til hamingju Eiður með það 1000. , og fyrgefðu hið sífellda tuð ;-) , en þú veist þó að þetta er satt.


mbl.is „Einhver þörf fyrir að rífa kjaft“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hví skildum við hafa áhyggjur ?



Í það minnsta hef ég sagt og segi enn og aftur; því fleiri kíló - þess meira að elska.

En samt ætla ég að setja þetta undir "Heilbrigðismál"


mbl.is Elskar aukakílóin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir Hallsteinsson - HVAÐ


Í eina tíð var Geir Hallsteinsson stórstyrni í íslenska handboltanum , mikið vatn er sannarlega runnið til sjávar síðan , en skelfing yrði hann lítill karl , með sína leikhæfileika eins og þeir voru , gegn strákunum okkar í dag.

Hallsteinn faðir hanns var sagður faðir handboltans , hér á Fróni , en ég vil eiginlega meina að annar maður eigi þann titil frekar skilið , hann heitir Ólafur (Stefánsson) , hver og einn einasti handboltamaður , sem væri um tvítugt og í landsliðinu , mætti vera rígmontinn sýndi hann sams konar leiki og Ólafur hefur sýnt , það er aðdáunarvert að sjá hvernig hann les leikina , hvern á fætur öðrum - ár eftir ár .

Til margra ára hef ég sagt að við höfum bara átt einn almennilegan mann í vítaköstin , hann Valda Gríms , en nú á Ólympíuleikunum hefur þessi sí- sí - síungi drengur , Ólafur , tekið - sem betur fer - nánast öll vítin og ekkert þeirra geigað , Snorri Steinn er feikna góður á línunni , en í vítaskotum; Jesús minn , ég vil nú samt endilega taka framm að mér er alls alls ekkert illa við Gauba , föður hanns , og því síður hann Guðmund föður hanns (afa Snorra Steins) , en Snorri Steinn er afar mistækur í vítunum og slíkt gengur engan veginn upp í erfiðum leikjum .

Ég mælist til þess að við tölum um Hallstein sem afa íslenska handboltans , en faðirinn er unglingurinn ÓÓÓllaafffuurr Stefánsson , en er hann orðinn tvítugur ?


mbl.is Ísland vann 17 marka sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögfræðilegt áfall er ??????????????????????????????????????

En kannské þú , Engeyjarbarn , gætir uppfrætt vora þjóð , hvert álit þitt sé á því að Sjóvá gekk ekki VAFNINGALAUST - er það kannské ekkert áfall fyrir réttarkerfið í landi voru , að aðeins eitt smápeð , sem að vísu ætti fyrir löngu að vera búið að sálga , hefur fengið dóm fyrir stórþjófnaði ykkar stór- glæpamannanna í landinu ?


mbl.is Áfall fyrir réttarfar landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur vorið á undan Þorranum ?



Ja nú skortir mig vit til að skilja svona frétt , sem betur fer , eða er kannski aðfangadagur í næstu viku ?
mbl.is Rauður vorboði í Grímsey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Verðsamkeppnin" leynist engum heilvita

manni : 232 - 232.10 - og 232.20 , já "Verðsamkeppnin" er á blússandi fart , alveg eins og áður fyrr hjá þessum líka sómafélögum , HVAR ER VERÐLAGSRÁÐ ?


mbl.is Allir hafa hækkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það lang- lang- lang- LAAANGRÉTTASTA



í þessum málum er ; sópa þessum Stórglæpamönnum í skip , sigla með þá út fyrir landhelgina , helst þar sem hákarla er von , og slaka VIÐBJÓÐNUM í hafið , jújú lengi tekur sjórinn við . Annað er í stöðunni; nota atvinnuleysingjana í að klambra saman gapastokkum , stilla þeim upp á Austurvelli , já fyrir framan Þjóðarleikhúsið , setja þessi "peningasení" í þá , og setja það í landslög , að hver sá , sem innbirt hefir snefil af brjóstbirtu og eigi leið frammhjá Austurvelli beri skylda til að veita þessari viðurstyggð frían hárþvott með drukkinni brjóstbirtunni . Slíkt væri líka sjampósparnaður fyrir ríkið , þ.e. okkur öll .

Það er löngu löngu LÖNGU kominn tími til að réttlætið nái fram að ganga.


mbl.is Tugir milljarða í húfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessu fyrirtæki


eiga sannir íslendingar , ekki að gefa rautt nef - heldur HEIL - LANGT nef , oll aettum við að vita ástæðuna , jú glaepamenn og stórglaepamenn eru ekki það sama .
mbl.is Starfsfólk Iceland Express með rautt nef
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki vil ég gera lítið úr fátæktinni - EN

annað er hálfu verra , í þjóðfélaginu (þjófafélaginu) og það er , að siðferðið hefur verið á fljúgandi undanhaldi , og er ástæðan ærin ; því á meðan fátæktin herjar á landslíð , virðist nánast allt benda til þess , að útrásar-víkinga kviku yndin munu komast upp með sína stórþjófnaði ,vel á við að minnast á mann er í glerhúsi býr er hann kemur með aðfinnslur í garð annarra stjórnmálamanna með sínum fimmaurabröndurum , á ég þar við sjálfan Hrunkonunginn er heldur sig , að ég tel , að Hádegismóum , honum færi vel að gista í klefa með Kvótadóra .

Það er þessum kviku yndum að þakka , að innbrot og þjófnaðir tilheyra orðið daglegu brauði vorra landsmanna - kannske það sé gott í bland með fátæktinni .


mbl.is Fátæktin hefur mörg andlit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En eigum við ekki að berja

augu vor nið´r á Austurvöll , til Þjóðarleikhússins - kemur ekki öll vonin og þess frekar birtan þaðan , ellegar ekki síður úr Laugardalnum , þar er nú aldeilis sólskinið.


mbl.is Guð ekki í nýrri miðaldakirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband