Sigurður og Hreiðar Már !

 Í ykkar sporum , sem ég á að vísu ekkert auðvelt með að setja mig í sem betur fer , myndi ég samvisku minnar vegna , og hvernig ég væri búinn að reynast þjóðinni , hafa vit á því að reyna eftir öllum mætti að halda vörunum saman , því þótt þjóðin sé misvitur eins og gengur og gerist með fólk , þá eru ansi fáir svo skyni skroppnir að átta sig ekki á því hvað þið eruð búnir að gera þjóðinni . Gerið okkur greiða ; haldið vörunum saman , og búið helst í Bretlandi , því þið eruð góð gjöf til Gordons Browns og hanns líkra . Gerist breskir ríkisborgarar þið siðblindu menn .
mbl.is Engar ólögmætar færslur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: azza

Já og farið hefur FÉ betra!

Hunskist burt og látið ekki sjá ykkur hér!

azza, 29.12.2008 kl. 19:56

2 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Góður póstur, það er nú varla hægt að orða þetta betur en það sem þú segir.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 29.12.2008 kl. 20:46

3 Smámynd: Hörður B Hjartarson

 Takk fyrir það Ægir , þeir færu létt með það að kenna "lýðnum hans Konn" siðblindu .

Hörður B Hjartarson, 30.12.2008 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband