Engan vildi ég fremur en Jóhönnu

 

    sem forsætisráðherra , en í dag held mér væri slétt sama þótt Skjaldborg Gjaldborg ÁrnaPálsdóttir færi , sérstaklega ef hún tæki með sér Össur bullustrokk , því skilji ég rétt , þá er hún fyrst og fremst að senda Ögmundi , Guðfríði Lilju og Lilju Mósesd. þennan tón .

 

    Vissulega mætti fækka köttum í Þjóðarleikhúsinu , en þeir eru mun fleiri í röðum Samfylkingarinnar en Vinsti grænna . Þessir þremenningar eru einna skástu mennirnir í leikarastéttinni í Þjóðarleikhúsinu svo Skjaldborg Gjaldborg þú ættir að þakka þeim fyrir þeirra innlegg í stað þessarrar sendingar .

 

    Getur verið að þú Skjaldborg Gjaldborg sést að taka upp takta Ingibjargar Sólrúnar , er hún upplýsti fólkið í landinu um að það væri ekki þjóðin (m.ö.o. , a.m.k. hundruð fólks er var sammála um framferði hennar í Hásk.bíó) ?

 

    Vonandi ert þú ekki farin að mjálma eða mala - og þó , kannski hvæsa ?

 

    Hitt er svo annað , að ekki skánaði ástandið ef minni hlutinn í Þjóðarleikhúsinu tæki við , slíkt væri að fara úr öskunni í eldinn , slíkt dylst engum er tvær kvarnir hefur í höfði sínu .

 

 

                                                   

 

    

 

 
mbl.is VG ræðir ummæli forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband